Starfsmönnum G. Hjálmarssonar á Akureyri brá heldur betur í brún í morgun þegar þeir mættu til vinnu. Tvær beltagröfur og einn vörubíll sem fyrirtækið á hafði verið skemmt í nótt. Spreyjað hafði verið með rauðu og svörtu olíu- eða lakkspreyi á tækin. Orð á borð við „aumingi“ og „öfund“ höfðu verið spreyjuð á gröfurnar.
Hjálmar Guðmundsson, einn eiganda G. Hjálmarssonar, sagði í samtali við fréttastofu að tjónið geti hlaupið á milljónum króna: „Það er búið að prófa að ná þessu af og þetta fer illa af. Þetta er einhverskonar olíulakk en ekki hefðbundið merkisprey.“
Farið að bera á fleiri skemmdarverkum og þjófnaði
Skemmdarverkin voru unnin á vélum fyrirtækisins sem voru upp í Móahverfi, hverfi norð-vestast á Akureyri sem er verið að byggja upp. G. Hjálmarsson hefur verið þar undanfarin fjögur ár og aldrei lent í öðru eins. Hjálmar segir hins vegar að það sé farið að bera meira á því að skemmdarverk séu unnin á eignum verktaka og einnig hafi verið brotist inn til tveggja á svæðinu:
„Byggingaraðilar og fleiri hafa orðið fyrir tjóni á svæðinu. Í fyrra var brotist inn til tveggja verktaka á svæðinu og verkfærum stolið. Ég er búinn að óska eftir við Akureyrarbæ að setja upp myndavélar inn og út úr hverfinu,“ segir Hjálmar.
Lögreglan og tryggingarfélög taka við málinu
Lögregla og tryggingarfélög voru kölluð til í morgun til þess að meta tjónið og reyna að hafa uppi á þeim sem frömdu verknaðinn. Hjálmar segir það bara fara sinn farveg:
„Lögreglan segir lítið. Þeir reyna bara að sinna sínu starfi og eru farnir að skoða þetta. Það eru tvær myndavélar í hverfinu sem þeir eru að skoða núna.“
Þá séu tryggingarfélög í því að meta tjónið á vélunum en báðar gröfurnar voru nýlegar og því umtalsvert tjón. Hjálmar segir að hann haldi að þetta hafi ekki verið neinir krakkar að verki:
„Ég á bágt með að trúa því að þetta sé eftir einhverja krakka. Þetta virkar eins og þetta hafi verið eftir einhverja stálpaða einstaklinga. Einhverja sem þurfa virkilega á aðstoð að halda.“