Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem farið er yfir verkefni embættisins frá klukkan fimm í gær til fimm í nótt.
Tilkynnt var um líkamsárás í miðbænum. Brotaþoli hlaut minni háttar áverka en gerandi er ókunnur.
Tvö þjófnaðarmál komu upp í gær, annað í Hafnarfirði og hitt í Grafarvogi. Bæði mál voru afgreidd á vettvangi.