Lögreglan í Alabama í Bandaríkjunum hefur handtekið 21 árs gamlan mann, Thomas Ronald Liccione að nafni, fyrir alvarlegt dýraníð. Liccione kastaði fimm kettlingum út um bílglugga á ferð.
Tímaritið People greinir frá þessu.
Hið sjúka atvik átti sér stað síðastliðinn mánudag, 1. júní, í bænum Homewood, sunnan við borgina Birmingham í Alabama. Um klukkan 13:00 fékk lögreglan nokkrar hringingar þar sem tilkynnt var um mann sem væri að kasta kettlingum út um bílglugga.
Lögreglan fann og elti uppi bílinn sem vitnin höfðu lýst. Í honum sat Liccione, sem býr í Birmingham.
„Lögreglumenn stöðvuðu bifreiðina og handtóku ökumanninn,“ segir í tilkynningu lögreglunnar. „Því miður voru allir kettlingarnir fimm dauðir eftir að hafa lent á og orðið fyrir öðrum bifreiðum.“
Taka málið alvarlega
Eftir rannsókn á vettvangi var Liccione færður í fangaklefa í Jefferson County fangelsinu og loks ákærður fyrir gróft dýraníð. Tryggingin var ákveðin 15 þúsund dollarar, eða tæplega 2 milljónir króna.
„Lögreglan í Homewood tekur ofbeldi og vanrækslu á dýrum mjög alvarlega,“ segir í tilkynningunni. „Við viljum þakka kærlega þeim sjónarvottum og ökumönnum sem höfðu samband við neyðarlínuna og létu lögreglunni í té upplýsingar um þetta mál sem og lögreglumönnum á vettvangi glæpsins.“
Ekki einsdæmi
Þótt atvikið virðist hrottalegt og óvanalegt þá er þetta ekki í eina skiptið sem mál af þessu tagi hefur komið upp. En svipað mál kom upp í Flórída fylki árið 2022.
Þá var 29 ára gamall maður, Diego Torres Ruiz, handtekinn og ákærður fyrir gróft dýraníð eftir að hafa kastað tveimur kettlingum út um gluggan, þar sem hann ók á mikilli ferð eftir hraðbraut.
Annar kettlinganna varð fyrir annarri bifreið og drapst samstundis. En hinn fannst skammt frá hraðbrautinni, slasaður en ekki í lífshættu. Var hann fluttur á dýraathvarf.