Mikil óánægja hefur blossað upp meðal sjúkraliða eftir ummæli sem féllu í útvarpsþættinum Bítinu á Bylgjunni. Fjöldi sjúkraliða hefur lýst yfir vonbrigðum og reiði vegna umræðunnar og segir einn þeirra að hópur sjúkraliða hyggist nú sameinast um að vekja athygli á mikilvægi starfsins og þeirri menntun sem það krefst.
Sögðu sjúkraliða vera ófagmenntaða
Í umræðunni sagði einn umsjónarmanna Bítsins, Sigmar Vilhjálmsson, að móðir hans hefði starfað sem sjúkraliði í 10 til 15 ár og sagði:
„Þetta er náttúrulega ófagmenntað, eða allavega var það, ófagmenntað fólk, en það lærir til verka.“
Lilja Katrín, sem einnig stýrir þættinum, bætti við:
„Já, þetta er ekki háskólamenntun, sem sjúkraliðar fara í gegnum.“
Ummælin hafa farið illa í marga sjúkraliða sem telja að með þeim sé dregið úr fagþekkingu og mikilvægi starfsstéttarinnar.
„Ég varð kjaftstopp“
Sjúkraliði lýsti viðbrögðum sínum í færslu á samfélagsmiðlum þar sem hún sagðist hafa orðið kjaftstopp þegar hún heyrði umræðuna á leið til vinnu.
Hún bendir á að sjúkraliðanám sé þriggja ára nám og að starfið snúist um mun meira en að sinna almennri umönnun. Nemendur læri meðal annars líffræði, eðlisfræði, lyfjafræði og skyndihjálp, auk þess að vinna með fjölbreytt lækningatæki og bregðast við neyðartilvikum.
Hún segir sjúkraliða meðal annars taka hjartalínurit, mæla lífsmörk, taka sýni, skrá meðferð sjúklinga og vera oft fyrst til að verða varir við breytingar á ástandi þeirra.
Jafnframt bendir hún á að starf sjúkraliða sé lögverndað og að starfsleyfi sé veitt af embætti landlæknis. Þá sé einnig hægt að bæta við diplómanámi á háskólastigi.
„Þetta særði mig ansi mikið og marga sjúkraliða,“ skrifar hún og bætir við að hún sé stolt af starfi sínu og sinni sjúklingum af heilum hug.

Segja stéttina ekki metna að verðleikum
Í annarri færslu segir sami sjúkraliði að ummælin séu ekki einsdæmi heldur endurspegli viðhorf sem margir sjúkraliðar verði enn fyrir.
„Þetta sýnir vanvirðingu gagnvart okkur og ennþá í dag heyrum við: ‘Æi, þú ert bara sjúkraliði, hvað heldur þú að þú vitir!’“
Hún segir að nokkrir sjúkraliðar ætli nú að taka sig saman og vekja sérstaka athygli á starfi sínu og reynslu.
„Þetta sýnir bara hversu mikils virði við erum í augum sumra,“ skrifar hún.

Formaður félagsins hefur einnig lýst áhyggjum
Þetta er ekki í fyrsta sinn á undanförnum dögum sem sjúkraliðar lýsa yfir óánægju. Í Morgunblaðinu á mánudag lýsti Sandra B. Franks, formaður Sjúkraliðafélags Íslands, yfir miklum áhyggjum af því að sjúkraliðar væru lítt sýnilegir í áætlunum stjórnvalda um uppbyggingu heilbrigðisþjónustunnar.
Hún sagði meðal annars að fjölgun hjúkrunarrýma án þess að búið væri að tryggja nægt framboð sjúkraliða væri ekki lausn heldur „ómönnuð skuldbinding“. Þá gagnrýndi hún að sjúkraliðar væru ekki skilgreindir sem sérstakur forgangshópur í mönnunarstefnu heilbrigðisþjónustunnar til ársins 2030.
Samkvæmt Söndru hefur Sjúkraliðafélag Íslands óskað eftir því að stjórnvöld leiðrétti þá stöðu og viðurkenni sjúkraliða sem lykilstétt í mönnun heilbrigðiskerfisins, en félagið hafi enn ekki fengið svör við þeirri beiðni.
Hægt er að hlusta í sðilaranum hér fyrir neðan um umræðan byrjar þegar 21 mínúta er liðin af þættinum.