Ákveðið var í byrjun árs að sameina skyldi sýslumannsembættin níu í eitt embætti og var staða sýslumanns auglýst laus til umsóknar í lok mars. Nýja embættið verður formlega stofnað í byrjun árs 2027. Tekið var sérstaklega fram að umsækjandinn ætti ekki að gera ráð fyrir því að starfa á höfuðborgarsvæðinu og er skipað í embættið í fimm ár í senn. Hjá embættinu munu starfa um 250 starfsmenn víða um land.
- Einar Jónsson, sviðsstjóri fullnustu- og skiptasviðs og staðgengill sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu.
- Jóhann Gunnar Þórarinsson, sviðsstjóri leyfisveitinga og eftirlits með gististöðum hjá sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu.
- Kristín Þórðardóttir, sýslumaður á Suðurlandi og settur sýslumaður í Vestmannaeyjum.
- Sigríður Kristinsdóttir, sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu.
- Skúli Hakim Thoroddsen Mechiat, löglærður fulltrúi hjá sýslumanninum á Vestfjörðum.
- Úlfar Lúðvíksson, fyrrverandi lögreglustjóri á Suðurnesjum.
- Veturliði Þór Stefánsson, skrifstofustjóri skrifstofu þjónustu í utanríkisráðuneytinu.