Brúðkaupið var auðvitað hið glæsilegasta og má telja líklegt að mörg verðandi brúðhjón dragi einhvern innblástur frá því. Hér eru sjö hlutir sem tískurisinn Vogue telur að verði að sumarbrúðkaupstrendi eftir veisluhöld Lipa og Turner.
Stólaborðar
Dua Lipa gifti sig í ítölsku sólinni og var athöfnin utandyra. Stólarnir í athöfninni vöktu athygli var sem hvítir silkiborðar voru festir við þá með slaufu. Fallegt og krúttlegt smáatriði.
Bróderaðir blævængir og servíettur
Það er sífellt að verða vinsælla að fá allt sérhannað fyrir brúðkaupið, allt frá fatnaði yfir í smáatriði eins og blævængi og servíettur. Þau höfðu merkt smáhlutina með dagsetningu brúðkaupsins, skammstöfun þeirra hjóna og uppáhalds tilvitnun þeirra: „Stay mad with me forever.“
„Retro“ myndakassar
Gamaldags myndakassar eru stöðugt að verða vinsælli í brúðkaupum en Dua Lipa og Callum Turner voru með slíkan í brúðkaupinu með bróderað tjald merkt nöfnum þeirra brúðhjóna.
18. aldar kerti og kertastjakar
Hjónin giftu sig í kastala frá barokk-tímabilinu og því var margt í 18. aldar glæsileika-stíl. Þar á meðal háu flottu kertin og vínflöskur voru notaðar sem kertastjakar í bland við stóra og glæsilega stjaka.
Tilkomumiklar skreytingar og leikmyndir
Vintage bílar, antík speglar, plaköt af gömlum kvikmyndum og bókahillur voru meðal skreytinga í brúðkaupi stjarnanna. Bílarnir voru meðal annars notaðir sem matarvagnar í glæsilegri kantinum.
Flugeldar
Brúðkaupsveisla stjórstjarnanna entist til sex morguninn eftir og gestir stigu trylltan dans. Í öllu fjörinu kemur ekki á óvart að kvöldið hafi svo verið toppað með glæsilegri flugeldasýningu, en slíkt húllum-hæ er líka einstaklega vinsælt í brúðkaupum á Ítalíu.
Sundlaugapartý daginn eftir
Þegar verið er að halda áfangastaðabrúðkaup er einstaklega vinsælt að bjóða gestum í sundlaugapartý daginn eftir. Það þykir sömuleiðis bæði góð og elegant leið til að leyfa þynnkunni hægt og rólega að líða hjá.
Gerður í Blush var einmitt með brúðkaup á Ítalíu á dögunum og bauð gestunum að sjálfsögðu í sundlaugapartý daginn eftir veisluhöldin.