Sjálfstæðisflokkurinn heldur áfram að bæta við fylgi sitt í Þjóðarpúlsi Gallup en í maímánuði mældist flokkurinn með 23,5%, en það er mesta fylgi flokksins síðan í janúar 2023.
Ríkisútvarpið greindi frá niðurstöðunum nú í kvöld en Sjálfstæðisflokkurinn mælist með rúmum tveimur prósentustigum meira en fyrir mánuði síðan.
Samfylkingin er sem fyrr með mest fylgi en flokkurinn stendur í stað á milli mánaða og mælist með 28,4%.
Flokkur fólksins út og Vinstri grænir inn
Miðflokkurinn mælist þriðji stærsti flokkurinn, með 17,6%, en missir þó eitt prósentustig frá því fyrir mánuði síðan.
Viðreisn mælist töluvert verr en Miðflokkurinn en er þó fjórði stærsti flokkurinn samkvæmt könnuninni. Fær flokkurinn 10,6%, sem er það sama og fyrir mánuði síðan.
Framsóknarflokkurinn bætir talsvert við sig á milli mánaða og mælist nú með 6,7% fylgi en var aðeins með 5,4% fyrir mánuði síðan.
Flokkur fólksins mælist aftur á móti ekki inni á þingi og hlyti aðeins 4% fylgi samkvæmt könnuninni. Vinstri grænir mælast litlu stærri, með 4,3%, sem myndi þó duga fyrir einum kjördæmakjörnum þingmanni.
Ríkisstjórnin fengi aðeins 28 þingmenn
Ef litið er til þess hvernig skipting þingmanna yrði ef niðurstöður þjóðarpúlsins myndu raungerast sést að ríkisstjórn Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins myndi falla.
Samfylkingin fengi 21 þingmann, sex fleiri en flokkurinn er nú með, Viðreisn fengi sjö og myndi fyrir vikið missa fjóra á meðan Flokkur fólksins myndi missa alla sína 10 þingmenn. Hlyti ríkisstjórnin því aðeins 28 þingmenn af 63.
Stjórnarandstöðuflokkar Sjálfstæðisflokks, Miðflokks og Framsóknar yrðu aftur á móti í töluvert betri stöðu og myndu hljóta 34 þingmenn, Sjálfstæðisflokkurinn 17, Miðflokkurinn 13 og Framsóknarflokkurinn 4.
Seinasti þingmaðurinn yrði svo kjördæmakjörinn þingmaður Vinstri grænna.