Söngkonan og fyrirsætan Suki Waterhouse segir að sjálfsmyndin hafi rifnað í sundur eftir að hún varð móðir í nýlegu viðtali við Variety. Hún hafi þurft að byggja upp sambandið við sjálfa sig og unnusta sinn, leikarann Robert Pattinson.
Waterhouse og Pattinson eiga tveggja ára dóttur. Hún segir margar áskoranir hafa fylgt móðurhlutverkinu og hún hafi þurft að finna sjálfa sig á ný eftir að dóttir hennar fæddist. Hún sagði að sambandið við Pattinson hefði einnig breyst mikið.
Í viðtalinu sagði Waterhouse opinskátt frá reynslu sinni af móðurhlutverkinu.
„Mér fannst eins og sjálfsmynd mín hefði verið rifin í sundur þegar ég varð móðir og ég setti mér líka mjög miklar væntingar,“ sagði hún. „Innra með mér hefur verið töluverð ólga og ég hef oft velt því fyrir mér hvort ég sé að gera rétt.“
Hún ræddi einnig um hormónabreytingarnar eftir fæðingu.
„Guð minn góður, hormónabreytingarnar strax eftir að maður eignast barn eru svo rosalegar. Það var eins og ég hefði endurheimt trúna á sjálfa mig. Og svo var það líka sambandið við makann minn. Ég vil ekki segja að ég hafi orðið ástfangin af honum aftur, því það hljómar eins og ég hafi hætt að elska hann, sem ég gerði aldrei,“ sagði hún og bætti því við að það að eignast barn skapar nýtt samband á milli foreldra.
„Gamla sambandið er horfið og maður þarf að byggja upp nýtt. Það felst líka ákveðin fegurð í því að geta fagnað því að við komumst í gegnum þetta saman.“
Waterhouse og Pattinson, sem hafa verið trúlofuð síðan í desember 2023, hafa varið einkalíf dóttur sinnar vel. Í mars birti Waterhouse þó sjaldgæfa mynd frá afmælisveislu dóttur sinnar.
„Prinsessan mín er orðin tveggja ára. Hún er ljós lífs míns,“ skrifaði hún við myndina.