Áslaug Arna hefur dvalið í New York-borg síðastliðið ár þar sem hún lagði stund á MPA-nám (e. Master in Public Administration in Global Leadership) við Columbia-háskóla þar í borg.
Sigurður Örn Hilmarsson varaþingmaður og lögmaður hljóp í skarðið fyrir Áslaugu á meðan en Áslaug er nú útskrifuð úr náminu og flutt aftur til Íslands.
Samkvæmt starfsáætlun Alþingis verður þingi slitið föstudaginn 12. júní. Áslaug nær því að sitja í rúma viku á þingi áður en að sumarfrí þingmanna hefst.
Áslaug tilkynnti flutningana skömmu eftir að hafa naumlega lotið í lægra haldi fyrir Guðrúnu Hafsteinsdóttur í formannskosningu á landsfundi Sjálfstæðisflokksins í febrúar í fyrra. Aðeins nítján atkvæðum munaði á milli frambjóðendanna tveggja.
Þingmaðurinn boðaði heimkomu sína eftir útskrift á samfélagsmiðlinum Instagram í apríl og bauð vinum og vandamönnum í fögnuð á Parliament-hótelinu við Austurvöll á fimmtudaginn í tilefni heimkomunnar.