„Mister Didi,“ eða Kristinn Már Gunnarsson, á sæti í tólf manna öldungaráði Hehe-ættbálksins í Iringa í Tansaníu í Afríku. Þar er hann til ráðgjafar ættarhöfðingjanum Adam Mkwawa sem þrátt fyrir ungan aldur hefur stýrt Hehe-mönnum í ellefu ár.
Adam er í dag 24 ára og reiðir sig mjög á öldungaráðið í öllum ákvarðanatökum er lúta að skipulagningu landbúnaðar og uppbyggingu fyrirtækja.
Kristinn var gestur Dagmála Morgunblaðsins og deildi þar sögu sinni sem er samofin Tansaníu. Fyrst lá leið hans til þessa framandi lands þegar hann var tólf ára gamall en þá flutti hann með fjölskyldu sinni til Tansaníu og bjó þar í fjögur ár.
Hann var í heimavistarskóla og kynntist þar jafnöldrum sínum sem margir hverjir voru Hehe-menn. Kristinn stofnaði fyrirtækið Baridi Group í Tansaníu fyrir fjórum árum og hefur það nú keypt rannsóknar- og námaleyfi til að vinna kopar, liþíum, grafít og fleiri verðmæta málma sem flokkast sem „batterísmálmar“ og er mikil eftirspurn eftir þeim.
Hér er birt brot úr viðtalinu við Kristin en áskrifendur Morgunblaðsins geta horft á viðtalið í heild sinni með því að smella á linkinn sem hér fylgir.