Ísland tekur fyrstu skrefin að Evrópumóti karla í handbolta 2028 næstu daga. Strákarnir okkar voru grátlega nærri verðlaunasæti á síðasta Evrópumóti. Liðið var nærri því að slá út verðandi Evrópumeistara Dana í undanúrslitum. Gísli Þorgeir Kristjánsson ræddi drauma landsliðsmanna um verðlaunasæti og Ólympíuleika. Leikstjórnandinn knái lék glimrandi vel á EM og segir tapið gegn Dönum sitja í mönnum.
Leikirnir tveir:
- Ísland - Úkraína - miðvikudag - 19:20 - RÚV2
- Eistland - Ísland - laugardag - 15:50 - RÚV
Allir vegir færir
Eftir afar jafnan leik í undanúrslitum unnu Danir að lokum 31-28 sigur. Gísli komst í úrvalsliðið er Ísland endaði í 4. sæti á síðasta EM. Þetta var í fyrsta sinn frá 2010 sem Ísland komst í undanúrslit á stórmóti.
Gísli telur leikina í undankeppninni núna vera mikilvægt fyrsta skref til að leiðrétta það sem þarf að laga fyrir næsta stórmót.
„Það sem situr meira eftir er hvað við vorum grátlega nálægt því að vinna Danina. Það er svona eitt og annað sem hefði getað farið betur í þeim leik. Af því við vorum svo ótrúlega nálægt því að vinna þá. En sem sýnir líka bara hvað allir okkar vegir eru færir næsta janúar.
Þannig að það er einhvern veginn meira svona að breyta því. Þessir litlu hlutir sem hefðu getað farið betur í janúar. Að færa þá yfir núna í janúar og virkilega komast aftur á þann stað sem við vorum núna síðast.“
Ekkert lið veitti Dönum jafn mikla mótspyrnu
Ísland hefur átt í tiltölulega litlum vandræðum með að komast í milliriðil á stórmótum en á síðasta stórmóti komst Ísland í undanúrslit í fyrsta skipti í langan tíma. Danska landsliðið er talið meðal þeirra allra bestu í sögunni.
Danskir landsliðsmenn hafa sagt við Gísla að Ísland hafi verið eina liðið sem náði að ógna þeim á EM.
„Ég held að það hafi ekkert annað lið veitt Dönum eins mikla mótspyrnu. Ég er alveg búinn að heyra það líka bara frá dönskum landsliðsmönnum að ef það var einhvern tímann þar sem þeir voru ekki hræddir en það titraði aðeins. Það var á móti okkur og þeir vissu líka hversu góðum leik þeir þurftu á að halda til þess að vinna okkur.“
„Það sýndi sig og sannaði svo sannarlega í þeim leik. Það er eitthvað sem við getum haldið áfram að gera. Það er eitthvað sem við viljum byggja á og ég er í rauninni bara spenntur að halda áfram á þeirri vegferð sem við vorum á og hættum á þarna síðasta janúar. Ég í rauninni bara get ekki beðið.“
Skemmtilegt að koma í umhverfið heima
Íslenska liðið býr við ákveðinn lúxus miðað við aðrar handboltaþjóðir. Strákarnir okkar geta nýtt tækifærið og gist í heimahúsi og hitt fjölskyldu. Það er ekki lenskan hjá öðrum þjóðum, þar sem leikmenn þurfa að gista á hóteli. Gísli nýtir því tímann til að hitta fjölskyldu.
„Það er skemmtilegt að breyta um umhverfi, skemmtilegt að koma í þetta íslenska umhverfi. Að vera heima og vera mikið með fjölskyldunni, fara í mat til mömmu og svona. Þannig að það er auðvitað gaman að breyta um umhverfi og fara úr fara úr Bundesligunni yfir í þennan mótus.“
Það er ekki á hverjum degi sem landsliðið leikur hér heima. Um miðjan mánudag voru aðeins 100 miðar eftir á leikinn gegn Úkraínu og því má fastlega búast við að það verði uppselt í Laugardalshöll.
Hvernig er að fá að vera á Íslandi og spila á Íslandi?
„Það er hrikalega gaman. Auðvitað vonumst við til að sjá fulla höll á miðvikudaginn og bara mikla stemningu. Það er alltaf gaman að spila hérna heima.“
Þurfa að setja miklar kröfur gegn minni spámönnum
Úkraínska liðið er mun lægra skrifað en það íslenska. Það getur reynst erfitt að stilla hugarfarið rétt. En Gísli telur að strákarnir séu meðvitaðir um að vegferðin á næsta stórmóti byrji strax í þessum tveimur leikjum.
„Það getur verið „tricky“ af því að þetta er einhvern veginn leikur sem maður á að vinna og allir gera miklar kröfur til okkar.
En það er eitthvað sem við tökum bara mjög glaðlega á móti. Við settum auðvitað mikinn og háan standard í janúar og við viljum halda þeirri vegferð áfram. Að sýna að við viljum vera þarna uppi með bestu landsliðin í heimi
Við gerum það ekkert með því að klára þetta verkefni sem er fram undan núna með einhverju 50% hugarfari eða að gera þetta með hálfum hug. Við þurfum að gera þetta fagmannlega, gera þetta vel og skila tveimur góðum sigrum í hús.“
Hugsar um verðlaun og ÓL
Þessi kynslóð landsliðsins hefur ekki komist á Ólympíuleikana, en þangað komst Ísland síðast árið 2012. Ísland vann síðast til verðlauna á stórmóti á EM 2010. Hversu mikið hugsar Gísli um árangur á stórmóti og Ólympíuleikana?
„Auðvitað er það draumurinn. En það kemur ekkert af sjálfu sér. Það er auðvitað verkefni sem við getum ekki bara beðið eftir í janúar. Við getum ekki einhvern veginn bara lullast áfram í þessu verkefni.
Þú kemur ekkert allt í einu í þessa leiki á móti þessum stóru liðum og ferð allt í einu að fúnkera. Að einhvern veginn allt fúnkeri á núll einni. Þess vegna þurfum við að halda áfram að byggja áfram á því sem við gerðum vel síðasta janúar.
Ég er alveg sannfærður um að við gerum það, ef við gerum þetta fagmannlega þá eru okkur allir vegir færir.“