Í fyrsta sinn í meira en tvo áratugi eru einræðisríki í heiminum fleiri en lýðræðisríki: 92 á móti 87 samkvæmt nýjustu skýrslu V-Dem stofnunarinnar við Gautaborgarháskóla, sem heldur úti stærsta gagnagrunni heims um stjórnarfar. Um 74 prósent mannkyns, tæpir sex milljarðar manna, búa nú undir einhverju formi einræðis. Ég birti í vikunni fræðigrein á ensku á Substack um hvernig þetta gerðist, og niðurstaðan er óþægileg: þetta er ekki röð af óheppni heldur lokuð hringrás þar sem fjögur tannhjól knýja hvert annað áfram.
Sigvaldi Einarsson skrifar: Þegar einræðisríkin urðu fleiri en lýðræðisríkin