Þróttur sigraði Fylki 3:1 í Árbæ í Lengjudeild karla í fótbolta í dag.
Fyrsta mark leiksins skoraði Sigurður Egill og kom hann Þrótturum yfir, 0:1.
Snemma í síðari hálfleik var Sigurður Egill aftur á skotskónum og kom hann þá gestunum tveimur mörkum yfir, 0:2.
Á 70. mínútu skoraði Magnús Ingi Þórðarson þriðja mark gestanna og var því róðurinn orðinn þungur fyrir Fylkismenn, 0:3.
Tveimur mínútum síðar náði Fylkir að klóra í bakkann með marki Theodórs Inga, 1:3.
Það reyndist þó vera síðasta mark leiksins og fór Þróttur með stigin þrjú heim.