Sigríður Þorvaldsdóttir, leikkona og leikstjóri, er látin 85 ára að aldri.
Sigríður fæddist í Reykjavík, dóttir Þorvaldar Steingrímssonar og Ingibjargar Halldórsdóttur. Hún útskrifaðist úr Leiklistarskóla Þjóðleikhússins og varð hárgreiðslumeistari nokkrum árum síðar. Hún stundaði framhaldsnám í leiklist í Hollywood og var fastráðin við Þjóðleikhúsið eftir heimkomu frá Bandaríkjunum.
Hún var um langt skeið ein ástsælasta leikkona landsins og lék stór hlutverk á sviði og í sjónvarpi. Eiginmaður Sigríðar var Lárus Sveinsson og eignuðust þau þrjár dætur.