Hann sigraði þingkonuna Haley Stevens í forvali Demókrataflokksins sem sneri baki við honum og lýsti yfir stuðningi við frambjóðanda Repúblikana í Michigan örfáum dögum fyrir kosningarnar. Stevens er nær hinni pólitísku miðju innan Demókrataflokksins en El-Sayed tilheyrir vinstri væng hans. Var þessi ákvörðun hennar harðlega gagnrýnd af flokksmönnum Demókrata.
Ekki gegnt kjörnu embætti
El-Sayed tekur við sætinu af Demókratanum Gary Peters sem bauð sig ekki fram til endurkjörs. El-Sayed er sonur egypskra innflytjenda og verður fyrsti múslimski öldungadeildarþingmaður Bandaríkjanna. Hann starfaði áður sem embættismaður á sviði lýðheilsu og hefur aldrei gegnt kjörnu embætti. Hann tapaði forvali Demókrata í Michigan fyrir átta árum með tveggja stafa tölu en fór alla leið þetta árið.
Sjálfur lýsti hann sér sem „ólíklegasta frambjóðandanum“ á kosningafundi í dag þegar hann lýsti yfir sigri í Detroit. „Takk fyrir. Þetta er allt út af ykkur.“
El-Sayed stóð frammi fyrir gríðarlegum fjárútlátum utanaðkomandi aðila, bæði í forvali Demókrata og í sjálfum kosningunum. Hann háði grasrótarbaráttu þar sem hann talaði fyrir greiðara aðgengi að heilbrigðisþjónustu, útilokun utanaðkomandi fjármagns í kosningabaráttu og gagnrýndi stríðsrekstur Ísrael harðlega.
Demókratar hafa tryggt sér meirihluta í báðum deildum Bandaríkjaþings og þar af fjögurra manna meirihluta í öldungadeildinni, samkvæmt greiningu AP-fréttaveitunnar.
Fréttin er í vinnslu.