Þeir látnu hafi fundist í lyftu í Oxy-turninum sem verið er að byggja miðsvæðis í Brussel, segir í umfjöllun BBC. Auk þess hafi tveir verið fluttir til aðhlynningar með alvarleg brunasár.
Slökkvistarf hafi gengið hratt fyrir sig en eldurinn hafi breiðst fljótt út í tvær lyftur í byggingunni sem voru fastar. Upptök eldsins séu óljós en hann hafi kviknað um áttaleytið í morgun að staðartíma.
Oxy-turninn er hálfum kílómeter frá Grand-Place torginu í Brussel en í honum standi til að opna íbúðir, hótel, veitingastaði og bari þegar byggingu hans er lokið.