Sex voru drepnir og 20 særðust í árásum Rússa á Úkraínu í dag. Árásunum var beint að iðnaðarsvæði og hafnarborginni Odesa og Sumy í norðausturhluta landsins.
Oleg Grygorov, héraðsstjóri í Sumy, sagði að þrír hefðu verið drepnir og sautján særst þegar sex drónum var skotið að borginni.
Eldflaugum og drónum var skotið að Odesa, bæði á höfnina og innviði. Oleg Kiper héraðsstjóri sagði að þrír hefðu verið drepnir og að þrír hefðu særst.