Barnamenningarhátíð í Reykjavík fer fram dagana 20.-26. apríl næstkomandi og er vettvangur hátíðarinnar borgin öll. Fjölbreyttir viðburðir fara fram í grunnskólum, leikskólum, frístundamiðstöðvum, menningarstofnunum, listaskólum og víðar. Barnamenningarhátíðin rúmar allar listgreinar fyrir börn og fjölskyldur þeirra.
Frítt er inn á alla viðburði.
Barnamenningarhátíð er þátttökuhátíð þar sem menning með börnum, fyrir börn er í fyrirrúmi. Hátíðin rúmar allar listgreinar og er flestum velkomið að taka þátt.
Hægt er að óska eftir að fá að taka þátt með því að senda póst á [email protected].
Allir viðburðir skulu fara fram á meðan hátíðin stendur, í Reykjavík og vera þátttakendum að kostnaðarlausu.
Þema Barnamenningarhátíðar árið 2026 er samkennd og samfélag.
Á hverju ári er samið nýtt lag Barnamenningarhátíðar. Lagið er samvinna tónlistarfólks og allra grunnskólabarna í 4. bekk í Reykjavík.
Lag Barnamenningarhátíðar 2026 er samið af í bræðrunum Hálfdáni Helga og Matthíasi Davíð í VÆB.
Við erum gífurlega þakklát fyrir að þeir tóku þátt í þessu verkefni með okkur.
Þema Barnamenningarhátíðar árið 2026 er samkennd og samfélag og fengu nemendur í 4. bekk í borginni það verkefni að svara ýmsum spurningum um hvað felist í samkennd og samfélagi. Texti lagsins er byggður á svörum barnanna.
- Útsetning og höfundar lags: VÆB
- Kvikmyndataka: Anotína Lársudóttir
- Leikstjórn: Erla Stefánsdóttir
Samin hafa verið lög fyrir Barnamenningarhátíð frá árinu 2015 og er hægt að skoða myndbönd af lögunum og fleira efni á Youtube Barnamenningarhátíðar.