Bresk stjórnvöld ætla á næstu þremur árum að setja yfir 250 milljónir punda, sem samsvarar vel yfir 40 milljörðum króna, í að verja samfélag gyðinga þar í landi.
Meðal annars á að fjölga lögreglumönnum á Englandi og í Wales um 500. Stjórnvöld ætla að auka öryggisgæslu í hverfum gyðinga, við skóla og bæna- og samkomuhús.
Nokkrar árásir hafa að undanförnu verið gerðar sem beinast að samfélagi gyðinga. Í mars var kveikt í fjórum sjúkrabílum sjálfboðaliðasamtaka gyðinga í London.
Viðbúnaðarstig vegna hryðjuverkaógnar í Bretlandi var hækkað eftir stunguárás sem beindist gegn gyðingum í London í apríl. Þá var gerð árás á bænahús gyðinga í Manchester á helgasta degi gyðinga, Yom Kippur, í október í fyrra.
„Aukið gyðingahatur sem við höfum horft upp á á síðustu árum hefur reynst prófraun fyrir gildi okkar sem þjóð,“ segir í yfirlýsingu frá Keir Starmer, fráfarandi forsætisráðherra Bretlands sem segir það hafa verið eitt helsta áherslumál sitt frá fyrsta degi í embætti að stemma stigu við þessari þróun.