Þetta herma heimildir Vísis en tillagan var felld með 40 atkvæðum gegn 31 á aðalfundi félagsins sem haldinn var í kvöld.
Í desember 2023 ákvað knattspyrnufélagið að fjarlægja styttu af séra Friðriki Friðrikssyni, stofnanda félagsins, sem hefur staðið á lóð félagsins. Var það gert eftir að Guðmundur Magnússon sagnfræðingur upplýsti í nýlegri bók um Friðrik að hann hefði leitað á unga drengi.
Séra Friðrik var æskulýðsfrömuður mikill og kom meðal annars að stofnun KFUM og KFUK á sínum tíma auk þess sem hann var stofnandi Vals.
Sjá einnig: Mál séra Friðriks
Sömuleiðis var stytta af Friðriki við Lækjargötu í Reykjavík fjarlægð. KFUM og KFUK sögðu í yfirlýsingu að frásagnirnar væru hafnar yfir skynsamlegan vafa.
Á sama fundi í kvöld var Arnar Þór Sævarsson, sem var aðstoðarmaður í ráðherratíð Ásmundar Einars Daðasonar, kjörinn nýr stjórnarformaður Vals. Frá 2023 hefur hann verið framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga en hann var áður bæjarstjóri Blönduóss.
Arnar Þór tekur við af Hafrúnu Kristjánsdóttur, sem hefur gegnt formennsku í félaginu síðan í fyrra, fyrst kvenna. Hún gaf ekki kost á sér til endurkjörs.