Sendiráð Rússlands segir ásakanir Þjóðverja um drónaárás í Leipzig rangar – Reuters

„Sendiráð Rússlands í Þýskalandi sagði á þriðjudag að ásakanir Þjóðverja um að Rússland bæri ábyrgð á tilraun til drónaárásar á Leipzig/Halle flugvöllinn í síðasta mánuði væru fáránleg og tilefnislaus óttaáróður fyrir Úkraínu og hernaðararm evrópsku elítunnar, sem kemur vopnaframleiðendum til góða.
Þýska ríkisstjórnin sagði á þriðjudag að hún hefði komist að þeirri niðurstöðu að Rússland bæri ábyrgð á atvikinu og fyrirskipaði röð aðgerða í kjölfarið, þar á meðal lokun ræðismannsskrifstofu og rússneskrar menningarmiðstöðvar í Berlín“, segir á fréttavef Reuters.
Sendiráð Rússlands í Þýskalandi sagði í yfirlýsingu að aðgerðirnar jafngildi fordæmalausri stigmögnun á stríðinu.
„Rússneski sendiherrann hafnaði alfarið ásökunum Berlínar sem órökstuddar, fáránlegar og andstæðar heilbrigðri skynsemi,“ sagði sendiráðið.
„Hann benti á að aðgerðirnar sem Þjóðverjar höfðu tilkynnt væru fordæmalaus aukning á átökum í samskiptum Rússa og Þjóðverja og yrðu ekki án afleiðinga, sem þýska ríkisstjórnin myndi bera fulla ábyrgð á.“
Þá greindi Vísir frá því nú í hádeginu að Utanríkisráðuneytið hafi kallað fulltrúa rússneska sendiráðsins á teppið í morgun vegna málsins.