Selja áhugavert en óklárað hús í Garðabæ

Við Keldugötu 1 í Urriðaholti í Garðabæ er nú til sölu glæsilegt og rúmgott einbýlishús með einstöku útsýni yfir Urriðavatn, Setbergshlíð og Heiðmörk. Um er að ræða 319,8 fermetra eign sem reist var árið 2022 og er auglýst á 229 milljónir króna.
Húsið stendur á eftirsóttum stað í Urriðaholti þar sem náttúra og útivist eru í fyrirrúmi. Frá eigninni er víðsýnt yfir nærliggjandi náttúruperlur og stutt í fjölbreyttar göngu- og hjólaleiðir við Urriðavatn, Vífilstaðavatn og í Heiðmörk.
Eignin skiptist í fimm svefnherbergi, fjögur baðherbergi og tvö eldhús. Þá eru þrjár svalir við húsið sem njóta útsýnisins til fulls. Á jarðhæð er sérstök aukaíbúð með sérinngangi sem býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika, hvort sem er fyrir stórfjölskyldu, gesti eða til útleigu.
Húsið er skráð á byggingastigi 4 samkvæmt ÍST 51:2001, en að stærstum hluta fullfrágengið að innan. Eftir er meðal annars að ljúka við baðherbergi á efstu hæð auk þess sem setja þarf upp lýsingu og loftaklæðningu í hluta hússins og teppi á stiga.
Fjölskylduvænt umhverfi einkennir hverfið en stutt er í grunnskóla og þrjá leikskóla í göngufæri. Þá eru samgöngur góðar og tengingar við helstu umferðaræðar höfuðborgarsvæðisins greiðar.
Seljendur hafa jafnframt gefið upp að þeir skoði skipti á minni eign, svo sem pari- eða raðhúsi í Garðabæ.