Leikkonan Lindsay Lohan birti á dögunum mynd af sér með syni sínum, Luai, sem er tveggja ára. Á myndinni má sjá drenginn kyssa móður sína á kinnina og Lohan brosir sínu breiðasta.
„Heppin mamma,“ skrifaði leikkonan við myndina.
Lohan, sem er 39 ára, á Luai með eiginmanni sínum, Bader Shammas, en þau gengu í hjónaband árið 2022. Hún hefur reglulega deilt svipmyndum úr fjölskyldulífinu á samfélagsmiðlum og hefur talað opinskátt um hversu mikið móðurhlutverkið gefi sér.
Lífsreynslan nýtist vel
Í viðtali í desember var Lohan spurð hvað henni þætti best við að vera móðir.
„Allt,“ svaraði hún. „Hvert einasta augnablik. Að fá að deila lífinu með annarri manneskju, sem maður hefur gefið líf, og sjá hana uppgötva heiminn.“
Lohan bætti við að reynsla hennar úr lífinu nýttist henni nú í móðurhlutverkinu.
„Allt sem ég hef gengið í gegnum get ég deilt með syni mínum, svo hann sjái aðra leið. Ég er þakklát fyrir þá reynslu og þekkingu sem ég hef öðlast,“ sagði hún.