Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og segir ýmsar fullyrðingar hennar um möguleg kjör Íslands innan Evrópusambandsins byggjast á óformlegum einkasamtölum.
Tilefni gagnrýninnar er meðal annars frétt Morgunblaðsins um viðbrögð Þorgerðar Katrínar við ummælum Rob Jetten, forsætisráðherra Hollands, í hollenska þinginu.
Sagði fréttina ekki í samræmi við samtöl sín
Þorgerður Katrín sagði frétt Morgunblaðsins ekki vera í samræmi við samtöl sem hún hefði átt, meðal annars við Hollendinga og samstarfsfólk sitt. Hún sakaði jafnframt blaðið um að hafa gert lítið úr þýðingu yfirlýsinga Jetten í þinginu og flutt fréttina vegna hagsmunagæslu.
Í hollenska þinginu hafði Jetten lýst þeirri stefnu að sameiginleg fiskveiðistefna Evrópusambandsins væri órjúfanlegur hluti af fullri aðild að sambandinu.
Þorgerður Katrín sakaði hann síðar um að hafa orðið tvísaga og sagði afstöðu hans vera ólíka því sem fram hefði komið í einkasamskiptum þeirra.
Samkvæmt Morgunblaðinu verður ekki séð af samskiptayfirliti utanríkisráðherra frá því í vor að Þorgerður Katrín og Jetten hafi átt formlegan fund. Jetten sagði þó í svari til blaðsins að þau hefðu rætt saman „á göngunum“ á NATO fundi í júlí.
Í nýrri frétt MBL.is neitar Jetten því að kannast við að hollenskir embættismenn hafi gefið vilyrði fyrir að Ísland fái slíkar undanþágur.
„Við fáum hitt, við fáum þetta“
Jón Pétur segir málflutning utanríkisráðherra einkennast af fullyrðingum sem erfitt sé að sannreyna.
„Margskonar fullyrðingar utanríkisráðherra koma upp úr einkasamtölum hennar við alls konar fólk frá ESB-valdinu,“ skrifar Jón Pétur á X.
Hann vísar þar meðal annars til yfirlýsinga um að Ísland gæti fengið sérstakar undanþágur eða ívilnanir í mögulegum aðildarviðræðum.
„Við fáum hitt, við fáum þetta,“ skrifar hann og bætir við að lokum:
„Talandi um upplýsingaóreiðu, ráðherra er uppspretta hennar.“
Margskonar fullyrðingar utanríkisráðherra koma upp úr einka samtölum hennar við allskonar fólk frá ESB-valdinu.
,,Við fáum hitt, við fáum þetta”.
Talandi um upplýsingaóreiðu, ráðherra er uppspretta hennar. pic.twitter.com/IjdJqc1d92
— Jon Petur Zimsen (@JPZimsen) July 19, 2026