Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa fengið tryggingu frá Íran um að landið muni ekki þróa kjarnorkuvopn.
Greint var frá því í gær að Trump hafi sent harðorðari friðartillögu til stjórnvalda í Íran.
„Eina tryggingin sem ég verð að fá er að það verði engin kjarnorkuvopn. Þeir hafa samþykkt það og það var mjög áhugavert,“ sagði hann í viðtali á Fox News í gærkvöldi.
New York Times og Axios greindu frá því í gær að Trump hefði sent nýja tillögu til stjórnvalda í Íran en ekki er tekið fram hvað felst í tillögunni.
Flýtir sér ekki
Í sama viðtali sagði Trump að hann væri ekki í neinum flýti. Síðustu daga hafa Trump og Pete Hegseth, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, gefið í skyn að Bandaríkin séu reiðubúin til að hefja aftur árásir á Íran.
„Ég er í engum flýti“. Hægt og örugglega erum við að fá, að ég held, það sem við viljum og ef við fáum ekki það sem við viljum mun þetta enda á annan hátt,“ sagði Trump.
Vopnahlé á milli Bandaríkjanna, Ísrael og Íran hefur verið við lýði síðan snemma í apríl. Daglegum árásum hefur linnt en átök hafa nokkrum sinnum blossað upp.
Stjórnvöld í Íran krefjast þess að 12 milljarðar dala í frystum eignum verði leystir úr haldi áður en gengið verði til formlegra viðræðna um mál eins og kjarnorkuáætlun þeirra.
Þá hafa stjórnvöld þar í landi einnig krafist þess að Líbanon verði hluti af stríðslokasamkomulagi.