Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, lögmenn hans og yfirmenn dómsmálaráðuneytisins reyndu að nota dómstóla sem yfirvarp til að ljá gjörðum sínum lögmæti, sagði alríkisdómari í Bandaríkjunum í úrskurði um málaferli Trumps gegn skattinum.
Trump krafði skattinn um 10 milljarða dollara í bætur vegna leka á upplýsingum um skattaframtöl hans. Dómsmálaráðuneytið, sem heyrir undir Trump, samdi við hann um lok málsins. Setja átti upp sjóð til stuðnings fólki sem hann segir ríkið hafa brotið á og um að Trump og fjölskylda hans fengju friðhelgi frá rannsóknum skattsins á skattaskilum þeirra.
Dómarinn Kathleen M. Kennedy, sem var skipuð af Barack Obama, forvera Trumps í embætti, sagði ljóst af staðreyndum málsins að allir sem komu að því hefðu átt sameiginlegra hagsmuna að gæta.
„Þetta snerist aldrei um einstakling sem sóttist eftir úrlausn dómstóls á lagalegri deilu eða ágreiningi um staðreyndir. Eðli málshöfðunarinnar og framganga aðila og lögmanna allt frá þingfestingu sýna að þetta var tilraun til að nota dómstólinn til að ljá samkomulagi um að veita fólki tengdu forsetanum friðhelgi og taka frá milljarða dollara af skattfé bandarísks almennings til að greiða úr umkvörtunarefni sem ekki er tilgreint í lögum.“
Dómarinn felldi samkomulag Trumps og ríkisins ekki úr gildi en sagði að honum og öðrum væri óheimilt að vísa til þess í samskiptum sínum við skattayfirvöld.
The New York Times segir að deilt hafi verið á hvort Todd Blanche, starfandi dómstmálaráðherra, hafi verið heimilt að fyrirskipa skattinum að hætta öllum rannsóknum á skattamálum Trump-fjölskyldunnar. Einnig sé óljóst hvort að skatturinn hafi farið að fyrirmælum hans.