Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í nótt að viðræður um frið í Mið-Austurlöndum væru á lokametrunum. Stutt væri í mjög góðan samning, eins og hann orðaði það.
Þetta hefur Bandaríkjaforseti ítrekað sagt án þess að það hafi gengið eftir. Trump sagði jafnframt Hormússund verða opnað um leið og samningur yrði undirritaður. Það gætu verið tveir til þrír dagar í það. Hann sagði að tillaga að samningi gæti litið dagsins ljós eftir einn til tvo daga.
Viðbrögð við þessum fullyrðingum Bandaríkjaforseta hafa enn ekki borist frá Íran.
Íranar og Ísraelar slíðra sverðin í bili
Það hitnaði í kolunum í Mið-Austurlöndum um helgina. Á föstudag og laugardag skiptust herir Bandaríkjanna og Írans á árásum.
Íranar og Ísraelar skiptust svo á árásum sem hófust á laugardagskvöld en lauk í gær.
Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels sagði í gærkvöld að Ísraelsher hefði hætt árásum í bili. Hann lagði áherslu á það að baráttunni við Íran og Hezbollah-samtökin væri þó ekki lokið.
Getur ekki álasað Netanjáhu fyrir að svara fyrir sig
Trump var í nótt spurður af blaðamönnum hvað hann hefði sagt við Netanjahú. Hann sagði að þeir hefðu átt gott samtal.
„Það var ráðist á hann og hann svaraði fyrir sig. Ég get ekki álasað honum fyrir það,“ sagði Trump. „Nú hafa þeir gert hlé og þeir ætla að láta hvorn annan í friði í viku eða svo,“ sagði Trump um Írani og Ísraela.
Þá var Trump spurður út í áhöfn bandarískrar þyrlu sem hrapaði yfir Hormússundi í nótt. Hann sagði að það væri í góðu lagi með flugmenn þyrlunnar en frekari upplýsingar verði gefnar út síðar í dag.