Borgarstjóri vill draga lærdóm af töfunum við Arnarnesveg og segir samgöngumálum Reykjavíkur hafa verið illa sinnt um langt skeið. Við ræðum við hana um stöðu samgöngumála í borginni og hvernig hún sér næstu skref fyrir sér.
Á Kirkjubæjarklaustri víkur bleikjan fyrir bjórnum. Brugghús er að taka á sig mynd í gömlu vinnslustöð Klausturbleikju og oddvitinn treystir því að bjórinn verði jafngóður og bleikjan.
Og rennvotir borgarbúar eru komnir með nóg af grámyglunni á meðan veðrið leikur við landsmenn víðast hvar annars staðar. Oddur Ævar ræðir við fólk á förnum vegi og veðurfræðing um þessa veðurskiptingu.
Þetta og meira til í fréttum á samtengdum rásum Sýnar, Bylgjunnar og Vísis klukkan 18:30.