Joanna Wąsewicz hefur varað foreldra við eftir að hún sá sprautur og nálar á leiksvæði við Leirubakka í Breiðholti. Hún birti ljósmyndir af aðstæðunum í Facebook hópnum Íbúasamtökin Betra Breiðholt og segist hafa hringt strax í lögregluna.
Á myndunum sjást margar sprautur, nálar og umbúðir á jörðinni. Joanna beindi skýrum tilmælum til þeirra sem fara með börn á svæðið:
„Vinsamlegast gefið börnum sérstaka athygli á leiksvæðinu í Leirubakka.“
Segir lögregluna hafa bent sér á að henda þessu í ruslið
Joanna segir að hún hafi séð sprauturnar á laugardegi og haft samband við lögregluna um leið. Samkvæmt frásögn hennar fékk hún þau svör að lögreglan gæti ekkert gert og að hún gæti sjálf tekið þetta upp og hent í ruslið, eða beðið eftir að Reykjavíkurborg kæmi á mánudegi.
Hún segist síðar hafa hitt starfsmann Reykjavíkurborgar sem var að tína sprauturnar upp og sagt honum frá þessum svörum.
Að sögn Joönnu sagði starfsmaðurinn að leiðbeiningarnar væru rangar. Lögreglan hefði átt að hafa samband við borgina og nálar og sprautur ættu að fara í sérstakt ílát.
Vakti athygli á hættunni og fékk hrós
Joanna lét síðar vita í athugasemd að búið væri að þrífa svæðið. Við þeirri uppfærslu fékk hún mikið hrós frá öðrum íbúum fyrir að vekja athygli á málinu.
Með því að birta myndirnar, vara foreldra við og tilkynna málið vakti hún athygli á aðstæðum sem geta skapað stunguhættu fyrir börn.
Miðstöð slysavarna barna leggur áherslu á að brýna fyrir börnum að snerta aldrei nálar eða sprautur sem þau finna á víðavangi, heldur segja fullorðnum frá. Jafnframt þurfi að fjarlægja slíka hluti eins fljótt og hægt er og farga þeim með öruggum hætti.
