Donald Trump Bandaríkjaforseti ásakaði Kína um að hafa komist yfir upplýsingar um 220 milljónir bandarískra kjósenda með ólöglegum hætti yfir nokkurra ára tímabil frá kosningatímabilinu 2020. Trump greindi frá þessu í sjónvarpsávarpi sínu frá Hvíta húsinu í gærkvöld. Hann sagðist ætla að gera leynileg gögn opinber sem myndu sýna fram á veikleika í kerfinu.
Trump gerði kosningakerfi Bandaríkjanna að helsta umtalsefni sínu í ávarpinu og sagði það viðkvæmt. Hann hvatti löggjafann til að taka upp nýjar takmarkanir á atkvæðagreiðslum til að koma í veg fyrir að kosningunum yrði stolið á ný, eins og hann orðaði það.
Hann hélt því einnig fram að yfir 250.000 kjósendur sem væru ekki bandarískir ríkisborgarar hefðu verið skráðir kjósendur í fjórum ríkjum í forsetakosningunum árið 2020.
Bandaríkjaforseti varði ekki miklum tíma í að fara yfir stöðu mála í Mið-Austurlöndum eða efnahagsmálin í ávarpi sínu.
Greinendur segja fátt nýtt í ávarpinu
Trump sagði fyrir ávarpið að hann myndi greina frá stórum fréttum varðandi kosningaöryggi í ávarpi sínu. Greinendur segja hann hins vegar hafa verið með sömu gömlu óstuddu fullyrðingarnar um veikleika í bandaríska kosningakerfinu.
Þingkosningar fara fram í Bandaríkjunum í nóvember. Forsetinn hefur reynt að koma frumvarpi í gegn á bandaríska þinginu um breytingu á kosningalögum. Frumvarpið hefur þó hlotið lítinn hljómgrunn, meira að segja meðal Repúblikanaflokksins.
Fullyrðingar forsetans hraktar
AFP fréttaveitan hefur hrakið nokkrar fullyrðingar Bandaríkjaforseta. Í skýrslu frá mars 2021 frá leyniþjónustum kemur fram að það væru engar vísbendingar um að erlendir aðilar hafi reynt að hafa áhrif á kosningarnar.
Þá segir AFP að það sé ólöglegt fyrir einstaklinga sem ekki eru bandarískir ríkisborgarar að kjósa í Bandaríkjunum. Bæði kosningaúttektir og óháðar rannsóknir hafa sýnt fram á að það sér afar sjaldgæft að það sé gert og fjölbreytt öryggisráðstöfun sé fyrir hendi svo það sé ekki hægt.