Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segist ekki geta sagt til um hvort tillögur sem Icelandair kynnti á fundi við FÍA í Karphúsinu í gær muni hreyfa við gangi mála í kjaraviðræðum.
Hann bindur vonir við að samninganefnd flugmanna leggi fram tillögur eða gagntilboð eftir að hún hefur kynnt sér tillögurnar. Ekki hefur verið boðað til nýs fundar.
Einkum er tekist á um hvíldartíma, vinnufyrirkomulag og svokallaða blautleigusamninga. Þeir fela í sér að flugfélag geti fengið erlent flugfélag til að fljúga fyrir sig. Icelandair hefur hingað til ekki haft heimild til að gera slíka samninga en vill breyta því.
Ástráður segir Icelandair enn hafa hug á því að geta notast við erlent vinnuafl þegar á þurfi að halda.
Það sé ekki sitt að dæma um hvort það kunni að setja hættulegt fordæmi í kjaramálum en bendir á að erlendis sé vel þekkt að vinnuveitendur fái aðstoð utan frá þegar á þurfi að halda.
Engu að síður megi færa rök fyrir því að gjalda þurfi varhug við því og setja ákvæðum þar um skýran ramma.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, sagði í kvöldfréttum í gær að mikilvægt væri að klára samninga. Það væri ekki aðeins mikilvægt fyrir flugfélagið heldur þjóðina og hagkerfið.