Þegar utanríkisráðherra Bandaríkjanna var spurður að því í gær hvort hann vissi að Grænland væri hluti af Danmörku svaraði hann: „í bili.“ Utanríkisráðherra Grænlands hefur svarað honum og segir engum vafa undirorpið að framtíð Grænlands verði ákveðin af Grænlendingum.
Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sat fyrir svörum í fulltrúadeild Bandaríkjaþings í gær. Sarah McBride þingmaður spurði hvort honum væri ljóst að Danir hefðu misst flesta hermenn miðað við höfðatölu í átökum við hlið Bandaríkjahers eftir hryðjuverkaárásirnar 11. september 2001. Rubio kvaðst hafa talið að það hefðu verið Bretar sem misstu flesta. Næst spurði þingmaðurinn hvort Rubio vissi að Grænland væri hluti af Danmörku.
„Í bili,“ svaraði Rubio. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ítrekað lýst því yfir að Bandaríkin þurfi að taka yfir Grænland í þágu þjóðarhagsmuna. McBride spurði Rubio hvort hann væri sammála því að taka þyrfti yfir Grænland til að geta varið það.
Rubio sagði það sjónarmið forsetans að það væri auðveldara að verja land sem Bandaríkin hefðu full yfirráð yfir. Þá sagði hann að viðræður við stjórnvöld á Grænlandi og í Danmörku gengju vel.
Múte B. Egede, utanríkisráðherra Grænlands, brást við ummælunum í færslu á Facebook í gærkvöld. Þar segir hann að yfirlýsingar Rubios breyti engu. Grænlendingar ráði framtíð Grænlands. Þannig hafi það verið, þannig sé það og verði áfram. Grænlendingar taki þátt í viðræðum á uppbyggilegan hátt og sýni virðingu eins og bandamönnum beri að gera.