Guðlaugur Þór Þórðarson þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir Daða Má Kristófersson fjármálaráðherra þurfa að svara betur fyrir afsögn Harðar Arnarssonar forstjóra Landsvirkjunar. Hann hafi ekki sagt satt og rétt frá um aðdraganda og ástæður uppsagnar Harðar.
Daði sagði á Alþingi að uppsögn Harðar hefði verið almenns eðlis og tengst áherslum í stjórn. Engu væri við skýringar stjórnar fyrirtækisins að bæta.
Ráðherra gaf villandi mynd af málinu
„Nú er það algjörlega staðfest að svar ráðherra þann 19. október í þinginu var í besta falli ófullnægjandi og gaf mjög villandi mynd af málinu. Ráðherra setti engan fyrirvara um þekkingu sína eða þörf á frekari athugun. Hann sagði hins vegar ítrekað að engu væri við söguna að bæta,“ segir Guðlaugur Þór.
Fréttastofa óskaði eftir öllum samskiptum milli fjármálaráðuneytisins annars vegar og stjórnar og forstjóra Landsvirkjunar hins vegar og greindi frá því í gær að Hörður hefði byrjað að gera athugasemdir við starfshætti stjórnar og fjármálaráðuneytisins í lok síðasta árs. Hann taldi afskipti stjórnarinnar af starfi fyrirtækisins óeðlileg og jafnvel ólögleg og óttaðist að þau stefndu rekstri Landsvirkjunar í hættu.
Ýmsu við þessa sögu að bæta
Guðlaugur Þór segir að þær athugasemdir Harðar hafi aldrei komið fram í máli ráðherra. Það skjóti skökku við.
„Það er nú bara þannig að samkvæmt þingsköpum og alls staðar í þeim löndum sem við berum okkur saman við verða ráðherrar að segja satt og rétt frá þegar þeir tala við þing og þjóð og það gerði ráðherrann ekki.“
Hann kveðst sjálfur munu fylgja málinu eftir á Alþingi með fyrirspurnum og kalla eftir frekari gögnum í málinu.
„Eitt er öruggt og það er að það er ýmislegu við þessa sögu að bæta.“