Samtökin ’78 kæra ákvörðun lögreglu um að hætta rannsókn á skrifum Helgu Daggar

Lögreglan á Norðurlandi eystra taldi að kærðar bloggfærslur Helgu Daggar Sverrisdóttur myndu ekki leiða til sakfellingar og hætti rannsókn málsins. Samtökin ’78 hafa kært ákvörðunina til ríkissaksóknara.
Þetta kemur fram í gögnum sem Helga Dögg hefur afhent Fréttinni. Ákvörðun lögreglu er dagsett 10. september 2026. Í tilkynningu ríkissaksóknara frá 29. október kemur fram að kæra vegna ákvörðunarinnar hafi borist embættinu 6. október síðastliðinn.
Upphafleg kæra Samtakanna ’78 var lögð fram 8. febrúar 2024 og laut að átta tilgreindum skrifum Helgu Daggar á bloggvefnum formannslif.blog.is árið 2023. Skrifin vörðuðu meðal annars aðgang að búningsklefum, kynvitund og fræðslu í skólum.
Samtökin töldu ummælin fela í sér háð, róg og smán í garð hinsegin fólks vegna kyneinkenna, kynhneigðar eða kynvitundar og varða við 233. gr. a almennra hegningarlaga.
Taldi skrifin ekki líkleg til að leiða til sakfellingar
Í rökstuðningi lögreglustjórans á Norðurlandi eystra kemur fram að ekki sé talið hægt að draga þá ályktun af skrifunum að Helga hafi verið að rógbera trans fólk. Lögreglan túlkar skrifin þannig að henni hafi verið umhugað um að benda á hættu sem hún teldi fylgja tilteknum heimildum, fremur en að ljúga sökum á hópinn.
Þá taldi lögreglustjóri ekki hægt að fallast á þann skilning á skrifunum að sanna mætti að Helga hefði með þeim smánað eða ógnað þessum tiltekna hópi fólks.
Í ákvörðuninni er jafnframt lögð áhersla á að túlka beri refsiákvæði þröngt, sérstaklega ákvæði sem takmarka tjáningarfrelsi einstaklinga. Þótt heimilt sé að takmarka tjáningarfrelsi hafi það verið mat lögreglustjóra að þessar tilteknu bloggfærslur myndu ekki leiða til sakfellingar. Sönnunarbyrði um sekt sakbornings hvíli á ákæruvaldinu.
Á þeim grundvelli var ákveðið að hætta rannsókn með vísan til 4. mgr. 52. gr. laga um meðferð sakamála.
Samtökin telja ummælin fara út fyrir vernd tjáningarfrelsis
Í upphaflegu kærunni lögðu Samtökin ’78 áherslu á að tjáningarfrelsi væri meðal mikilvægustu réttinda manna, en gæti sætt takmörkunum vegna réttinda annarra.
Að mati samtakanna væru kærðu ummælin alvarleg, meiðandi og fordómafull og nytu ekki verndar tjáningarfrelsis. Fóru samtökin fram á rannsókn lögreglu og að Helgu yrði refsað lögum samkvæmt.
Rökstuðningur kærunnar til ríkissaksóknara liggur hins vegar ekki fyrir hjá Fréttinni. Því er ekki unnt að greina hér frá því hvaða einstöku atriðum í niðurstöðu lögreglu samtökin mótmæla.
Ríkissaksóknari hefur ákvörðunina til endurskoðunar
Í tilkynningu ríkissaksóknara segir að embættinu beri að taka afstöðu til kærunnar innan þriggja mánaða frá móttöku hennar.
Tilkynningin felur ekki í sér ákvörðun um að hefja rannsókn að nýju. Fyrirliggjandi gögn sýna að ákvörðun lögreglu um að hætta rannsókninni hefur verið kærð og bíður endurskoðunar hjá ríkissaksóknara.
Tvær fréttir Fréttin.is frá febrúar 2023 eru meðal fylgiskjala upphaflegu kærunnar og er vísað til þeirra í umfjöllun kæranda um bakgrunn málsins. Kærðu ummælin eru þar tilgreind sem skrif á bloggvef Helgu Daggar.