Reykjanesbær birti af þessu tilefni grein á heimasíðu sinni þar sem tíundað er það helsta úr starfsævi Vilhjálms. Hann er fæddur á Sauðarkróki árið 1983 og lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra árið 2004, útskrifaðist úr Lögregluskóla ríkisins árið 2006 og lauk síðar bæði BA-prófi og meistaraprófi í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Í kjölfar kosninganna gerðu Sjálfstæðismenn og Miðflokksmenn samning um meirihlutasamstarf og í gær var tillaga þess efnis að Vilhjálmur yrði ráðinn bæjarstjóri samþykkt.
Guðný Birna Guðmundsdóttir oddviti Samfylkingarinnar gagnrýndi í færslu á samfélagsmiðlum að samþykkt hefði verið að ráða Vilhjálm án þess að fyrir lægi ráðningarsamningur. Gögn varðandi ráðninguna verði lögð fram í bæjarráði á fimmtudag sem fari þá aftur til bæjarstjórnar til samþykktar.
Eins og fram hefur komið er Vilhjálmur enn formlega þingmaður Suðurkjördæmis. Um helgina sagði hann í samtali við fréttastofu að hann þurfi tíma til að klára sín mál gagnvart þingflokknum áður en hann segi þingmennsku af sér. Hann kvaðst stefna á að gera slíkt um viku til tíu dögum þar á eftir.
Vilhjálmur kallaði inn varamann í sinn stað á Alþingi um miðjan apríl. Ingveldur Anna Sigurðardóttir tók þá sæti á þingi en hún var þriðji maður á lista sjálfstæðismanna í Suðurkjördæmi í síðustu kosningum.