Donald Trump Bandaríkjaforseti segir fulltrúa Bandaríkjanna vera á leið til Islamabad í Pakistan til áframhaldandi viðræðna við Íran. Hann birti færslu á Truth Social þar sem hann sagði samninganefndir funda annað kvöld.
Vopnahlé milli Bandaríkjanna og Írans rennur út á miðvikudag.
Forsetinn fer ekki með til Pakistan heldur fer J.D. Vance varaforseti fyrir bandarísku samninganefndinni, hefur fréttastofa AFP eftir embættismanni í Hvíta húsinu. Með honum verði Steve Witkoff, sérstakur erindreki, og Jared Kushner, tengdasonur og ráðgjafi Trumps.
Trump sagðist bjóða sanngjarna niðurstöðu. Ef Íranar samþykki hana ekki ætli Bandaríkin að eyða öllum kjarnorkuverum og fella allar brýr í Íran. Hann kvaðst hættur öllum vettlingatökum.
„Ef þeir samþykkja ekki samkomulagið verður það minn heiður að gera það sem þarf, sem aðrir forsetar hefðu átt að gera gegn Íran síðustu 47 ár. Það er kominn tími til að stöðva drápsvélina!“ sagði í færslu Trumps.
Íranar segja enn vera langt í land þrátt fyrir að árangur hafi náðst í viðræðum um stríðslok. Forseti íranska þingsins, sem er í samninganefnd Írana, sagði að nokkur grundvallaratriði væru enn óafgreidd.
Mike Waltz, fulltrúi Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, sagðist eiga von á að næsta umferð viðræðna myndi skila afdrifaríkri niðurstöðu.