Þetta kemur fram í tilkynningu, en þar segir að Samherji muni leggja fram tuttugu milljónir á ári á næstu fimm árum í verkefnið, sem samanlagt gera hundrað milljónir. Þá sé markmiðið að fá atvinnulífið til liðs við verkefnið þannig að sjóðurinn geti úthlutað yfir 300 milljónum króna til þriggja verkefna sem sögð eru bráðnauðsynleg.
Guðrún Karls Helgudóttir biskup verður verndari Samheldni.
Þrjú verkefni eru nefnd í tilkynningunni: Í fyrsta lagi á að bæta umgjörðina fyrir fjölskyldur hjá SÁÁ þar sem börn og ungmenni glíma við fíknivanda. Í öðru lagi á að reisa smáhýsi í landi Hlaðgerðarkots í Mosfellsdal fyrir fólk sem hefur misst, eða aldrei öðlast, getu til að búa sjálfstætt. Í þriðja lagi á að reisa nýja álmu og tuttugu nú pláss við meðferðarheimilið í Krýsuvík.
„Við vildum koma inn með myndarlegum hætti en því miður er þörfin svo gríðarleg að fleiri þurfa að leggjast á árarnar,“ er haft eftir Baldvini Þorsteinssyni, forstjóra Samherja í tilkynningunni.
„Í rekstri okkar höfum við í gegnum tíðina fundið hversu djúpstæð, hryggileg og eyðileggjandi fíknivandamál eru og reynt að bregðast við með því að leggja starfsfólki okkar og fjölskyldum þeirra lið þegar þau hafa lent í slíkum öngstrætum,“ segir hann líka.
„Í nálægðinni við starfsfólkið finnum við hvað þessi mál eru átakanleg og hversu harkalega þau reyna á alla sem þeim tengjast. Við viljum nú gera þetta með formlegri og víðtækari hætti en við höfum gert hingað til og efna til sameiginlegs átaks til að takast hraustlega á við vandann. Við höfum góðar vonir um að við fáum breiðan almennan stuðning og öflug fyrirtæki og fólk í íslensku atvinnu- og þjóðlífi til þátttöku með loforðum um framlög næstu fimm árin,“ segir Baldvin.
„Ég fagna þessu framtaki og því hugarfari sem þar kemur fram. Ég og við öll hjá kirkjunni þekkjum alltof vel afleiðingar fíknisjúkdóma og mikilvægi meðferðarúrræða. Ég mun því gera það sem ég get til þess að leggja þessu framtaki lið,“ er haft eftir Guðrúnu Karls Helgudóttur biskup, verndara Samheldni.
Stjórn samtakanna skipa Anna María Kristinsdóttir, mannauðsstjóri Samherja, Einar Logi Vignisson, framkvæmdastjóri RÚV sölu, Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, Sunneva Ósk Guðmundsdóttir, framleiðslustjóri ÚA, og Valgeir Magnússon, stjórnarformaður Pipars\TBWA, sem verður jafnframt stjórnarformaður samtakanna. Varamaður er Marta María Winkel Jónasdóttir.
Þá verður Söfnunarráð Samheldni eftirfarandi: Baldvin Þorsteinsson, Einar Logi Vignisson, Svanhildur Þórsteinsdóttir, Patricia Bono, Björgvin Páll Gústavsson, Helen Breiðfjörð, Valgeir Magnússon