Viðreisn tapar tæplega tveggja prósentustiga fylgi milli mánaða samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallups. Samfylkingin bætir öðru eins við sig.
Þetta er fyrsti þjóðarpúlsinn sem birtist eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarviðræður við Evrópusambandið um liðna helgi. Könnunin var hins vegar gerð frá 4. ágúst og út mánuðinn og litast því ekki nema að mjög litlu leyti af niðurstöðu atkvæðagreiðslunnar – þótt umræðan í aðdragandanum hafi sjálfsagt haft sín áhrif.
Flokkur fólksins hyrfi líklega af þingi
Samfylkingin – annar flokkanna sem stóð í stafni baráttunnar fyrir því að þjóðin segði já, og tapaði þeirri baráttu – mælist enn stærsti flokkur landsins með tæp 30 prósent, og bætir við sig 1,7 prósentustigi á milli mánaða. Hinn já-flokkurinn, Viðreisn, tapar hins vegar nákvæmlega jafnmiklu, og mælist með 9,7 prósent, sem er það minnsta í tvö ár.
Flokkarnir sem mest töluðu fyrir nei-inu, Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur, bæta báðir við sig um prósentustigi, Sjálfstæðisflokkur mælist næststærstur með 27 prósent og Miðflokkurinn þriðji stærstur með tæp 16 prósent. Þriðji nei-flokkurinn, Framsókn, tapar lítillega milli mánaða og mælist með fimm og hálft 5,5 prósent.
Flokkur fólksins mælist með 4,8 prósent sem dygði líklega ekki fyrir þingsæti, og Vinstri græn og Sósíalistar mælast með 3,6 og 2,4 prósent sem kæmi þeim ekki á þing.
Stuðningur við stjórnina stendur í stað
Stuðningur við ríkisstjórnina hefur dalað jafnt og þétt, úr 69 prósentum í upphafi kjörtímabils, en breytist reyndar lítið milli mánaða og stendur í 50 prósentum.
Ef kosið yrði nú væri ríkisstjórnin fallin miðað við þessar niðurstöður. Samfylkingin og Viðreisn fengju samanlagt 29 þingmenn, en Flokkur fólksins sem áður segir engan. 32 þingmenn þarf til að mynda naumasta mögulega meirihluta á Alþingi. Ríkisstjórnarflokkarnir þrír hafa nú 35 þingmenn.