Samfylkingin mælist stærst en Viðreisn tapar fylgi
Samfylkingin mælist með tæplega 30 prósenta fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup og er áfram stærsti flokkur landsins. Viðreisn missir tæp tvö prósentustig frá síðustu könnun. Stjórnarflokkarnir þrír eru saman með 44 prósenta fylgi en helmingur þeirra sem taka afstöðu segist styðja ríkisstjórnina.
Samfylkingin mælist með 29,6 prósenta fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup og bætir við sig 1,7 prósentustigum frá því í júlí. Sjálfstæðisflokkurinn mælist næststærstur með 26,8 prósent og bætir við sig 1,4 prósentustigum.
Miðflokkurinn mælist með 15,6 prósenta fylgi og Viðreisn með 9,7 prósent. Viðreisn tapar 1,7 prósentustigum frá júlí og er það stærsta breytingin á fylgi einstakra flokka milli mánaða.
Framsóknarflokkurinn mælist með 5,5 prósenta fylgi og Flokkur fólksins með 4,8 prósent. Vinstri græn, sem eiga ekki fulltrúa á Alþingi eftir síðustu kosningar, mælast með 3,6 prósent og Sósíalistaflokkur Íslands, sem aldrei hefur átt þingfulltrúa, með 2,4 prósent.
Flokkur fólksins langt undir kjörfylgi
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur er mynduð af Samfylkingunni, Viðreisn og Flokki fólksins. Saman mælast flokkarnir nú með 44,1 prósents fylgi. Það er svipað og í júlí, þegar samanlagt fylgi þeirra var 44,5 prósent, en talsvert minna en samanlagt kjörfylgi flokkanna í þingkosningunum 2024, sem var rúmlega 50 prósent. …