Sakborningur í 2200 daga þökk sé RÚV

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Arna McClure starfaði sem lögfræðingur hjá Samherja þegar RÚV bjó til Namibíumálið, ásakanir um að norðlenska útgerðin hafi stundað mútugjafir í Afríkuríkinu. Kveiks-þáttur RÚV í nóvember 2019 staðhæfði án gagna – en með vitnisburði Jóhannesar Stefánssonar uppljóstrara – að mútur hafi verið greiddar í Namibíu um miðjan síðasta áratuga til að Samherji fengi veiðikvóta.
Frá RÚV fór málið til héraðssaksóknara með millilendingu á alþingi sem veitti 200 milljón króna aukafjárveitingu til að rannsaka ásakanir ríkisfjölmiðilsins sem byggðu á orðum ógæfumanns.
Arna skrifaði fyrir fjórum dögum færslu á Facebook um þá reynslu sína að vera sakborningur i tvö þúsund og tvöhundruð daga. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir ,,í gegnum árin hef ég ekki einu sinni fengið að vita hvað ég á að hafa gert af mér,“ skrifar Arna.
Af því RÚV sagði það, væri heiðarlegt svar héraðssaksóknara. Rannsókn Namibíumálsins lauk fyrir einu ári. Eftir að rannsókn sakamáls lýkur er aðeins tvennt í stöðunni. Í einn stað að ákæra, séu sakarefni fyrir hendi. Í annan stað að fella málið niður. En hvorugt er gert. Hvers vegna? Af því það hentar hvorki RÚV né embættinu, væri heiðarlegt svar héraðssaksóknara.
Arna og átta aðrir starfsmenn Samherja eru í gíslingu tveggja ríkisstofnana, RÚV og héraðssaksóknara. Orðspor starfsmanna þessara stofnana er í húfi, sem og tiltrú RÚV og héraðssaksóknara.
Tilfallandi hlaðvarp fjallar um Samherjaáráttu RÚV.