Á meðan leit stóð yfir var hún umfangsmikil og beindist einkum að svæði í námunda við þann stað sem bifreið ferðamannsins fannst nærri Hólaskógi, en þaðan liggur vegur að útsýnisstað á móts við Háafoss. Leitinni var frestað í fyrrakvöld þar sem nær engar vísbendingar fundust um hugsanlegar ferðir mannsins, en teknir hafa verið daglegir stöðufundir síðan til að meta framhaldið. Staðan verður tekin aftur á mánudag. Þangað til safnar rannsóknardeildin gögnum og freistar þess að finna upplýsingar um ferðamanninn og mögulegar ferðir hans hérlendis.
Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega - Vísir