Vinir og fjölskylda Kára Benónýssonar og Ingerar Erlu Thomsen hafa efnt til söfnunar fyrir þau og tveggja ára son þeirra eftir að yngri sonur þeirra, Bergur Ottó, lést sviplega aðeins þriggja og hálfs mánaða að aldri. Góð vinkona Kára og Ingerar segir um harmleik að ræða og að áfallið og sorgin séu mikil.
Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir er góð vinkona Ingerar og Kára og greinir frá söfnuninni á Facebook:
„Bergur Ottó skilur eftir sig stórt skarð og er sorgin ólýsanleg og næstu skref þyngri en orð fá lýst.
Fram undan eru mjög krefjandi tímar fyrir fjölskylduna. Þau Inger, Kári og Hersir Logi munu þurfa allan þann stuðning sem býðst.
Við fjölskylda þeirra og vinir höfum með þeirra leyfi ákveðið að stofna styrktarreikning fyrir litlu fjölskylduna.“
Lifði í aðeins þrjá og hálfan mánuð
Bergur Ottó lést sviplega 6. júní síðastliðinn en Hallgerður greinir frá því í samtali við DV að hann hafi fæðst 17. febrúar. Bergur Ottó náði því aðeins að verða um þriggja og hálfs mánaða gamall.
Kári og Inger áttu fyrir soninn Hersi Loga sem er tveggja ára gamall.
Aðspurð um þetta mikla áfall fyrir foreldra og bróður Bergs Ottós og fjölskyldu þeirra og vini segir Hallgerður að um algjöran harmleik sé að ræða. Þau séu öll slegin:
„Mikill missir að honum og við syrgjum með fjölskyldunni.“
Þeim sem vilja styðja við bakið á foreldrum og bróður Bergs Ottós er bent á styrktarreikning sem er á nafni Sigríðar, móður Kára:
Kennitala: 010671-3299
Reikningsnúmer: 0123-15-260828