Rúv greindi frá stórum mengunarpolli á svæði við Sævarhöfða þar sem starfsemi Malbikunarstöðvarinnar Höfða var áður á lóð í eigu Reykjavíkurborgar. Árið 2022 ákvað borgin að þar skyldi byggja íbúðablokkir og festi fyrirtækið kaup á lóð við Álhellu í Hafnarfirði. Síðan þá hafa flutningar og tiltekt staðið yfir.
Um er að ræða stóra bikbreiðu en er fréttastofu bar að garði voru þar fulltrúar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur og Malbikunarstöðvarinnar.
„Við fáum ábendingu um það að það sé óviðeigandi meðhöndlun úrgangs á þessu svæði og við fórum og könnuðum hvernig aðstæður væru. Við teljum þetta ekki vera fullnægjandi meðhöndlun á þessu efni og úrgangi sem er hérna á svæðinu og við höfum óskað eftir að farið verði í hreinsun og þetta efni flutt á stað sem hefur leyfi til að taka við því,“ segir Svava Svanborg Steinarsdóttir, verkefnastjóri og heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur.
Fyrirætlanir Malbikunarstöðvarinnar voru að flytja efnið yfir á Álhellu og endurnýta það í annars konar verkefni. Svava vísar í starfsleyfi fyrirtækisins sem veitt er af Umhverfis- og Orkustofnun en þar segir að fyrirtækið megi ekki taka við slíkum úrgangi á nýjum stað.
„Við munum fara í það núna að gera úttekt á svæðinu og skoða meðhöndlun á úrganginum sem er hér í gangi, það er stórt niðurrifsverkefni í gangi. Þá munum við láta hreinsa ef um mengun er að ræða og ganga frá öllum efnum og úrgangi á fullnægjandi hátt.“
Hlýða Heilbrigðiseftirlitinu
Í kjölfar þess að starfsmenn Heilbrigðiseftirlitsins og Malbikunarstöðvarinnar tóku út svæðið funduðu þau með Birki Hrafni Jóakimssyni, framkvæmdastjóra Malbikunarstöðvarinnar. Er þau stigu út af fundinum hafði verið ákveðið að farga ætti efninu.
„Við töldum okkur geta endurnýtt þetta en það er ekki skilningur heilbrigðisyfirvalda þannig að við förum með þetta í urðun fyrir mengaðan jarðveg og það er bara endirinn á því máli,“ segir Birkir Hrafn.
„Við ætluðum að reyna að endurnýta þetta og litum á þetta sem ákveðin verðmæti en heilbrigðiseftirlitið lítur öðruvísi á og við heyrum undir það og hlýðum því sem það segir.“