Rannsóknarnefnd samgönguslysa hefur sent frá sér lokaskýrslu vegna banalyss sem varð á mótum Vatnsgarða og Sundagarða í Reykjavík í september á síðasta ári. Í slysinu lést eldri maður eftir að hafa ekið fram af klettabrún. Fram kemur í skýrslunni að nokkrum dögum áður hafi hann verið metinn óhæfur til aksturs og verið sviptur ökuskírteininu til bráðabirgða. Vildi maðurinn hins vegar ekki sætta sig við það og hélt áfram að keyra.
Maðurinn var á áttræðisaldri. Tilkynnt var um slysið um klukkan 21 en þá var myrkur og rigning.
Í skýrslunni segir að slysið hafi orðið með þeim hætti að maðurinn hafi ekið Hyundai Santa Fe fólksbifreið sinni norðvestur Vatnagarða. Við T-gatnamót, þar sem
Sundagarðar liggi þvert á Vatnagarða, hafi bifreiðinni verið ekið á suðurenda umferðareyju sem aðgreinir akstursáttir á Vatnagörðum við gatnamótin. Þaðan hafi henni verið ekið þvert yfir suðurakrein Sundagarða, yfir umferðareyju sem aðskilji akreinar Sundagarða og áfram yfir grasbala meðfram Sundagörðum. Bifreiðin hafi síðan steypst fram af klettabrún og fallið sjö metra.
Framendi bifreiðarinnar hafi fyrst lent á steyptum vegg sem brotnað hafi að hluta undan henni. Bifreiðin hafi síðan endað á hvolfi inni á fyrrum athafnasvæði Hringrásar hf. Fjarlægð frá fyrstu umferðareyjunni, sem bifreiðinni var ekið yfir, að staðnum þar sem hún endaði á hvolfi sé um 25 metrar.
Ökumaðurinn var einn í bifreiðinni og lést á slysstað. Hann var ekki í öryggisbelti.
Ökuhæfni
Í skýrslunni segir að meginorsök slyssins sé sú að maðurinn hafi verið án ökuréttinda og ekki hæfur til að stjórna bifreið. Nokkrum dögum fyrir slysið hafi læknir metið ökumanninn óhæfan til aksturs vegna heilsufars. Í kjölfarið hafi ökuréttindi hans verið afturkölluð til bráðabirgða og ökuskírteini tekið í vörslu lögreglu.
Þrátt fyrir afturköllun ökuréttinda hafi ökumaðurinn lýst yfir vilja til að halda áfram akstri. Hann hafi ekið á ný þrátt fyrir að hafa verið metinn óhæfur til aksturs. Fyrirliggjandi gögn bendi til þess að heilsufar ökumanns og skortur á innsæi á eigin aksturshæfni hafi átt verulegan þátt í því að hann hóf akstur.
Segir ennfremur að aðrar orsakir þess að svona fór hafi verið að maðurinn hafi ekki notað öryggisbelti og vitnisburður bendi til þess að hann hafi ekið bifreiðinni yfir leyfilegum hámarkshraða.
Að lokum kemur Rannsóknarnefnd samgönguslysa á framfæri ýmsum ábendingum meðal annars þessari:
„Ef mat á aksturshæfni leiðir til þess að ökumanni er ráðlagt að hætta akstri, eða hann er sviptur ökuréttindum, er mikilvægt að ökumaður hlíti því og aki ekki áfram.
Markmið slíkra skilyrða er að stuðla að ábyrgum akstri og draga úr hættu á slysum, þannig að umferðin verði öruggari fyrir alla.“
Skýrsluna í heild er hægt að nálgast hér.