Kafari særðist alvarlega eftir árás hákarls undan ströndum Vestur-Ástralíu í morgun.
Aðeins tvær vikur eru síðan maður lést eftir árás hákarls í norðurhluta landsins. Þrír hafa látist þar í landi í hákarlaárásum það sem af er ári.
Ástralskir vísindamenn telja að flökkumynstur hákarla sé að breytast, ekki síst vegna hækkandi sjávarhita. Það kunni að skýra aukna tíðni hákarlaárása.