Bandaríkjaforseti segist hafa sett sem skilyrði fyrir kjarnorkusamningi þeirra og Sádi-Araba að þeir viðurkenndu Ísraelsríki og tækju upp hefðbundin ríkjasamskipti við þarlend stjórnvöld. Samningurinn er ákveðið skref í átt vígvæðingar í Mið-Austurlöndum, að mati prófessors í sagnfræði.
Verða að gerast aðilar að Abrahams-samningunum
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social í dag að samningurinn yrði samþykktur en að það yrði skilyrði að Sádi-Arabar viðurkenni Ísraelsríki.
Þeir verði að gerast aðilar að Abrahams-samningunum, sem Trump hafði milligöngu um á fyrsta kjörtímabili sínu sem forseti. Þar féllust ýmis múslimaríki á að viðurkenna sjálfstæði Ísraels og taka upp stjórnmálasamband við landið.
Trump sagði einnig í færslunni að ekkert efni yrði auðgað með þessum samningum.
Með samningunum geta bandarísk fyrirtæki tekið þátt í að byggja kjarnorkuver til að auðga úran. Það er hægt er að nota sem eldsneyti fyrir orkuver en einnig til að búa til kjarnorkusprengjur.
Samningarnir bíða samþykkis öldungadeildar Bandaríkjaþings en gætu mætt andstöðu meðal þingmanna sem óttast skort á eftirlitsráðstöfunum til að takmarka auðgun úrans.
Ákveðið skref í átt vígvæðingar í heimshlutanum
Guðmundur Hálfdánarson, prófessor í sagnfræði, segir þetta áhugaverð tíðindi, sérstaklega í ljósi þess að Bandaríkjamenn séu í stríði við Íran þar sem eitt yfirlýstra markmiða er að koma í veg fyrir að Íranar komi sér upp kjarnorkuvopnum.
„Þannig að þetta opnar svolítið sviðið. Sádí-Arabía hefur ekki legið á því að þeir eru mjög fúsir til að þróa sjálfir kjarnorkuvopn, sérstaklega ef Íran nær að gera það. Þannig að þetta er ákveðið skref í áttina til vígvæðingar á þessu svæði.“
Guðmundur segir samninginn geta ýtt undir áhuga annarra þjóða á þróun kjarnorkuvopna
„Það skal tekið fram að það er auðvitað ekki meiningin með þessum samningum að þeir geri það. En þar sem þeir hafa sjálfir leyfi til að auðga úran geta þeir þróað þetta áfram.“
Ísrael býr þegar yfir kjarnorkuvopnum sem ýmis nágrannaríki eru ekki sátt við. „Og vilja líka kjarnorkuvopn. Þannig að við verðum bara að sjá til.“