Söngkonan Sabrina Carpenter fékk bráðabirgðanálgunarbann eftir að eltihrellir mætti endurtekið heim til hennar. Poppstjarnan, sem flestir K100-hlustendur þekkja af smellinum „Taste“, þurfti að leita til dómstóla í Los Angeles í þessari viku til að tryggja öryggi sitt.
Hinn 31 árs gamli William Applegate mætti þrisvar sinnum á heimili hennar á þremur dögum, nánar tiltekið dagana 23. til 25. maí síðastliðinn, og var handtekinn tvisvar vegna málsins. Carpenter notaði upptökur úr dyrasímamyndavél sinni sem sönnunargögn fyrir réttinum.
Dómari samþykkti kröfuna samstundis og þarf maðurinn nú að halda sig í að minnsta kosti 90 metra fjarlægð frá söngkonunni, bílnum hennar, heimili og vinnustað. Atvikið sýnir dökka hlið frægðarinnar en málið þykir dæmigert fyrir það áreiti sem þekktar konur í tónlistarbransanum mega ítrekað þola.