Hinn handtekni í tengslum við hótun um ofbeldi í skóla í Borlänge í Svíþjóð er drengur á táningsaldri. Hótanirnar urðu til þess að 20 skólum í bænum var lokað. Sænskir fjölmiðlar segja að hótunin hafi falið í sér skotárás en lögreglan hefur ekki tjáð sig um það.
Lögreglan hafði lýst eftir drengnum á mánudaginn. Hún er með hótanirnar til rannsóknar og er verið að yfirheyra drenginn vegna þeirra.
Hættan vegna hótananna er liðin hjá og skólarnir munu starfa eðlilega á morgun.