Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? - Vísir

Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? - Vísir

Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? - Vísir

Nýi yfirherforinginn heitir Mykjailo Drapatjí en hann er einungis 43 ára gamall. Þrátt fyrir tiltölulega ungan aldur hefur hann mikla reynslu af hernaði, þar sem hann hefur staðið í átökum við Rússa frá því þeir innlimuðu Krímskaga og studdu aðskilnaðarsinna í austurhluta landsins árið 2014.

Drapatjí þykir vinsæll bæði innan landamæra Úkraínu og utan. Selenskí sagði frá ráðningunni í gær en þá hafði hann áður rætt við fjölmarga yfirmenn í herafla Úkraínu.

Það fylgdi umfangsmiklum mótmælum í Úkraínu eftir að Selenskí rak varnarmálaráðherrann, sem hafði þá deilt mikið við Oleksander Sirskí, fyrrverandi yfirherforingja.

Deilurnar milli þeirra hafa orðið einskonar táknmynd átaka milli gamallar kynslóðar úkraínskra hermanna og nýrrar.

Drapatjí hafði áður tekið afstöðu með Fedóróv í deilunum og þykir tilheyra nýju kynslóðinni. Hann sagði meðal annars að breytingar væru nauðsynlegar fyrir úkraínska herinn og þjóðina. Breyta þyrfti menningunni innan hersins.

Sjá einnig: Fundar með fjölda her­foringja í skugga mót­mæla

Í ávarpi sem hann birti í gær sagðist hann þakklátur Sirskí fyrir störf hans og sagði mikilvægt að Úkraínu kæmi sterkari úr deilum síðustu daga. Hann sagði þó að frekari breytingar væru í vændum.

Mótmælin í Úkraínu munu þó mögulega ekki hætta nema Selenskí ákveði að ráða Fedóróv aftur.

Stökk yfir vegatálma

Yfirherforinginn nýi útskrifaðist úr herskóla árið 2004. Árið 2014 var hann orðinn major í úkraínska hernum. Það ár varð hann þekktur í Úkraínu þegar myndband af bryndreka sem hann var í stökkva yfir vegatálma aðskilnaðarsinna í borginni Maríupól fór eins og eldur í sinu um internetið.

Eftir innrásina 2022 kom Drapatjí að vörnum Kryvyu Rih og var einn af stjórnendum gagnsóknarinnar þegar Kherson var frelsuð í suðurhluta Úkraínu. Síðan þá hefur hann tekið að sér ýmis stjórnunarstörf hvað varðar varnir Úkraínumanna en í janúar í fyrra bað Selenskí hann um að taka yfir stjórn á vörnunum í Dónetsk-héraði í austurhluta landsins.

Sex mánuðum síðar sagði hann af sér eftir mannskæða árás Rússa á þjálfunarstöð á yfirráðasvæði hans og vildi hann með því axla ábyrgð á árásinni. Hann var þó fljótt skipaður í yfirstjórn hersins þar sem hann hefur meðal annars lagt til ýmsar breytingar hvað varðar óvinsælt herkvaðningakerfi Úkraínu og tækniþróun.

Hann hefur að undanförnu komið að vörnum Karkívs og borgarinnar Kúpíansk.

Sjá einnig: Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa her­numið

Í yfirlýsingu sem hann birti í gær sagðist Drapatjí hafa alist upp í úkraínska hernum og að hann myndi gera allt sem hann gæti fyrir verjendur Úkraínu. 

Fedóróv tjáði sig einnig um ráðninguna en hann sagði að nú þyrfti að veita úkraínsku þjóðinni skýra sýn á það hvernig hægt væri að binda enda á stríðið með góðum hætti og varðveita líf Úkraínumanna.

Frá einum af fundum Selenskís og Drapatjís.AP/Forsetaembætti Úkraínu

Gagnrýndi menninguna innan hersins

Úkraínskir miðlar segja Drapatjí hafa verið feiminn við fjölmiðla í gegnum árin en aðrir leiðtogar í hernum og aðrir sem þekkja til hans beri virðingu fyrir honum. Hann sé þekktur innan heraflans sem góður og skilvirkur stjórnandi.

Kyiv Independent segir hann hafa lengi talað fyrir því að yfirmenn í hernum taki ábyrgð á því sem gengur illa og læri af mistökum sínum.

Honum hefur meðal annars verið hrósað fyrir að spyrja undirmenn sína spurninga og styðja þá vel, í stað þess að gefa þeim eingöngu skipanir.

Í júní í fyrra birti yfirherforinginn færslu á Facebook þar sem hann fór yfir ýmis vandamál í úkraínska hernum. Hann sagði andrúmsloftið í yfirstjórn hersins hafa einkennst af ótta, skorti á frumkvæði og aga, auk annarra vandamála. Margar slæmar ákvarðanir hefðu verið teknar, sem er í takt við þá gagnrýni sem hefur beinst að Sirskí að undanförnu.

Rob Lee er greinandi sem ferðast reglulega til Úkraínu og ræðir þar við hermenn og stjórnendur í úkraínska hernum. Hann segir Drapatjí vera gott val fyrir Selenskí, þar sem hann hafi mikla reynslu af því að leiða hermenn á víglínunni og af yfirstjórn og þeim vandamálum sem finna má þar.

Hann hafi þar að auki lagt til góðar breytingar og reynt að breyta menningunni innan hersins til hins betra. 

Snýr í grunninn að lýðræði

Jack Watling, sérfræðingur bresku hugveitunnar Royal United Services Institute, sem er elsta hugveita heims sem fjallar um hernað, skrifaði nýlega grein um deilur Sirskís og Fedóróvs. Þar fer hann yfir það hvernig deilurnar snúast í raun um togstreitu milli varnarmálaráðuneytisins annars vegar og herforingjaráðsins og stjórnenda herafla Úkraínu hins vegar.

Þetta snúist ekki eingöngu um nýjan hugsunarhátt gegn gömlum heldur snúist þetta í grunninn um lýðræði.

Fedóróv var skipaður í embætti í janúar 2026 og var hann þá vel kunnugur vandamálum úkraínskra hermanna. Hann hafði áður verið aðstoðarforsætisráðherra og séð um útvíkkun drónaframleiðslu og notkunar í Úkraínu.

Honum var einnig kunnugt um það hve miklu álagi úkraínskir hermenn væru undir og eru og þá sérstaklega fótgönguliðar á víglínunni. Mannöflun gengi illa og sömuleiðis að halda mönnum á víglínunni.

Sem varnarmálaráðherra lét hann gera ítarlega rannsókn á öllum 120 stórfylkjum (Brigade) Úkraínu. Í kjölfar þess komst Fedóróv að þeirri niðurstöðu að um sjötta hvert stórfylki væri illa leitt og skilaði ekki nægilega góðum árangri á víglínunni.

Því ákvað hann að fækka stórfylkjum með því að sameina mörg og færa hermenn til stórfylkja sem væru betur leidd en skorti iðulega hermenn. Þetta vildi hann gera í stað þess að senda nýja kvaðmenn til stórfylkja sem stæðu sig ítrekað illa og ólíklegt væri að þau myndu skána á næstunni.

Frá mótmælum í Kænugarði á mánudaginn.Getty/Danylo ANtoniuk, Anadolu

Vildi draga úr álagi

Aðrar breytingar sem Fedóróv vildi koma í gegn var að tryggja að úkraínskir hermenn þyrftu ekki að verja of miklum tíma á víglínunni án hvíldar. Helst vilja Úkraínumenn að hermenn verði ekki lengur en fjörutíu daga á víglínunni án þess að fá hvíld.

Það getur hins vegar reynst mjög erfitt og hættulegt fyrir hermenn að komast af víglínunni. Eftirlit með henni er gífurlega mikið og um leið og hermenn sjást á opnum svæðum er iðulega skotið á þá með stórskotaliði eða sjálfsprengidrónar sendir eftir þeim. Þetta hefur leitt til þess að hermenn hafa verið í allt að tvö hundruð daga í skotgröfum á víglínunni án nokkurrar hvíldar.

Fedóróv vildi taka á þessu með því að styrkja stórdeildir (Corps) úkraínska hersins og þjappa þeim saman á víglínunni.

Í einföldu máli sagt er herafli Úkraínu að miklu leyti byggður upp kringum stórfylki (Brigade), að sovéskum stíl. Í fyrra var sú ákvörðun tekin að taka upp stórdeildakerfi að vestrænum sið og sameina mismunandi stórfylki í stórdeildir (Corps). Sú vinna hefur gengið misvel og mishratt.

Stórdeild er hærri stjórnunareining en stórfylki. Þegar Fedóróv tók við embætti hafði stórdeildum í mörgum tilfellum verið dreift vítt á dreif um víglínuna í stað þess að hver stórdeild sæi um eitt tiltekið svæði á henni.

Þetta hefur gert yfirstjórn og eftirlit mun erfiðara en annars.

Fedóróv vildi einnig finna stjórnendur sem hafa reynst góðir í því að nýta tækni eins og dróna og róbóta til að draga úr mannfalli og veita þeim aukna ábyrgð, fleiri hermenn og hergögn.

Neituðu að fylgja ráðuneytinu

Þegar varnarmálaráðuneytið var að hefja þessa vinnu segir Watling að ákveðið mynstur hafi fljótt sést.

Ráðuneytið sagði hernum að sameina stórfylki en í staðinn gaf Sirskí þá skipun að þeim skyldi fjölgað um þrjú. Þegar ráðuneytið sagði að þjappa þyrfti stórdeildum á víglínunni tók Sirskí þess í stað margar af bestu hersveitum Úkraínumanna og dreifði þeim enn frekar á víglínunni.

Svo þegar starfsmenn Fedóróvs voru að reyna að bera kennsl á góða stjórnendur kom í ljós að í mörgum tilfellum hefðu hermenn verið teknir af þeim, auk hergagna, og þeir fluttir til annarra sveita sem lögðu áherslu á mannskæðar og gífurlega áhættusamar gagnsóknir gegn Rússum. Í sumum þessara sveita hafa stjórnendur verið sakaðir um að misþyrma undirmönnum sínum.

Starfsmenn varnarmálaráðuneytisins áttuðu sig á því að ef þeir báru kennsl á góða stjórnendur var líklegt að herforingjaráðið refsaði þeim og græfi undan þeim.

Watling segir að frá sjónarhóli Sirskís hafi hann séð ráðuneyti sem ætti að einbeita sér að því að útvega hernum hermenn og hergögn vera að skipta sér um of af stjórn hersveita. Fedóróv taldi aftur á móti að ekki væri hægt að aðskilja þetta tvennt um of.

Þetta leiddi, samkvæmt Watling, til þess að stærðarinnar gjá myndaðist milli ráðuneytisins og herforingjaráðsins.

Úkraínskir hermenn verja oft löngum tíma á víglínunni án hvíldar.Getty/Kostiantyn Liberov, Libkos

Gífurlega óvinsæl herkvaðning

Þrátt fyrir að hafa rekið Fedóróv hefur Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, verið skýr um að sá sem tekur við af honum eigi að halda umbótunum sem Fedóróv hóf áfram. Helstu umbæturnar sem taldar eru nauðsynlegar snúa að því hvernig menn eru kvaddir í herinn.

Eins og kerfið virkar núna eru tilteknar hersveitir með það hlutverk að finna menn í takt við ákveðinn kvóta og kveðja þá í herinn. Stundum eru menn þessir hreinlega handsamaðir en kerfið er og hefur verið gífurlega óvinsælt í Úkraínu. Komið hefur til átaka milli þessara sveita og óbreyttra borgara í Úkraínu og hafa menn látið lífið.

Úkraínska herinn skortir sífellt hermenn, þótt nægilega margir hafi iðulega verið kvaddir í herinn. Fedóróv sá að vandamálið var að slæm þjálfun og slæm stjórnun, auk spillingar, leiddu til þess að minnihluti kvaðmanna endaði í þeim hersveitum sem skorti menn.

Watling segir að ekki verði hægt að laga þetta á meðan herforingjaráðið neiti að framkvæma umbætur í takt við ætlanir varnamálaráðuneytisins. Þá sé einnig verulega ólíklegt að næsta ráðherra muni ganga betur að koma umbótum í gegn án samvinnu herforingjaráðsins og það óttist margir Úkraínumenn.

Það að herforingjaráðið hafi ekki viljað fylgja skipunum frá stjórnvöldum sem valin eru af kjósendum í Úkraínu feli í raun í sér að herinn sé að setja lýðræðislega kjörnum stjórnvöldum stefnu en ekki öfugt. Þess vegna hafa umfangsmikil mótmæli farið fram víðsvegar um Úkraínu eftir að Selenskí rak Fedóróv.

Uppfært: Drapatjí er ekki formaður herforingjaráðs Úkraínu, eins og stóð fyrst í greininni, heldur yfirmaður herafla Úkraínu, yfirherforingi. Selenskí skipaði herforingjann Ihor Skíbíúk sem formann herforingjaráðsins í morgun. 

#deilurnar #hver #nýr #rýnt #yfirherforingi


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262912260d/rynt-i-deilurnar-hver-er-nyr-yfirherforingi-ukrainu-

📰 Aðrar fréttir

Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík
📅 22.10.2026 👁️ 2
Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík
Formaður samtaka gegn gyðingaandúð gagnrýnir PFLP-fána og slagorð í Palestínugöngu í Reykjavík Fréttin22. október 2026InnlentLeave a Comment Hákon Jóh...
Stjarna úr The White Lotus leikur á móti Baltasar og Ólafi Darra í nýrri íslenskri kvikmynd
📅 22.10.2026 👁️ 2
Stjarna úr The White Lotus leikur á móti Baltasar og Ólafi Darra í nýrri íslenskri kvikmynd
Kanadíski leikarinn Adam DiMarco, sem sló í gegn í annarri þáttaröð hinna vinsælu sjónvarpsþátta The White Lotus, hefur verið ráðinn í aðalhlutverk ný...
Five-year-old girl among three injured after crash on TF-1 motorway
📅 22.10.2026 👁️ 2
Five-year-old girl among three injured after crash on TF-1 motorway
A five-year-old girl and two adults were taken to hospital after two cars collided on the TF-1 near Las Chafiras in southern Tenerife this morning (Th...
Arnar Þór fékk martröð í nótt sem hann óttast að geti orðið að veruleika
📅 22.10.2026 👁️ 2
Arnar Þór fékk martröð í nótt sem hann óttast að geti orðið að veruleika
Lögmaðurinn og samfélagsrýnirinn Arnar Þór Jónsson fékk martröð í nótt sem hann óttast að verði að veruleika. Í færslu í hópnum Ísland – Þvert á flokk...
Lögmaður Margrétar Löf varpar ljósi á líf hennar á Hólmsheiði
📅 22.10.2026 👁️ 3
Lögmaður Margrétar Löf varpar ljósi á líf hennar á Hólmsheiði
Lögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson segir fangelsið á Hólmsheiði vera mannfjandsamlega byggingu og er hann ekki bjartsýnn á að nýtt öryggisfangelsi sem...
Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik - Vísir
Vinna við farþegasalinn við Þönglabakka er þegar hafin og á að ljúka 5. desember. Framkvæmdir við stöðina utandyra gætu hafist vorið 2027, en sú tímas...
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka
📅 22.10.2026 👁️ 2
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka
Bandaríkin fyrirskipa brottflutning sendiráðsstarfsfólks frá Sádi-Arabíu – óttast frekari stigmögnun átaka Fréttin22. október 2026ErlentLeave a Commen...
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu
📅 22.10.2026 👁️ 2
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu
Nei bjargaði Íslandi frá brennandi Evrópu Fréttin22. október 2026Evrópusambandið, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar:...
Breytingar í Mjódd til að bregðast við of­beldi - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Breytingar í Mjódd til að bregðast við of­beldi - Vísir
Fjallað verður um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar en hundruð íslenskra vefsíðna voru útsettar fyrir gallanum og lágu margir vefir niðri á tímabili í...
Óléttur karl ætti að fá Nóbelsverðlaunin
📅 22.10.2026 👁️ 2
Óléttur karl ætti að fá Nóbelsverðlaunin
Drenglyndi hópur foreldra og kennara hefur vakið athygli á upplýsingaóreiðunni sem fylgir því þegar fjölmiðlar segja frá ,,óléttum karlmanni.“ Dv Kvör...
Sparkaði upp herbergishurð og tók sambýliskonuna kyrkingartaki
📅 22.10.2026 👁️ 2
Sparkaði upp herbergishurð og tók sambýliskonuna kyrkingartaki
Dómari við Héraðsdóm Vesturlands dæmdi karlmann á mánudag til þriggja og hálfs árs fangelsisvistar. Hann var að auki dæmdur til að greiða sambýliskonu...
Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fanga­klefa - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fanga­klefa - Vísir
Þann 6. október kvartaði kvenkyns fangi vegna aðbúnaðar síns í Fangelsinu Hólmsheiði en hún hafði frá upphafi afplánunar sinnar verið vistuð í myndavé...
Segja upp 34 á­skriftum og opna stæðin al­menningi - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Segja upp 34 á­skriftum og opna stæðin al­menningi - Vísir
Umhverfis- og skipulagsráð samþykkti í gær að efsta hæð bílahússins við Bergstaðastræti verði opnuð sem P1-gjaldsvæði. Miðhæð hússins er þegar rekin m...
Olíuverð hækkar – nálgast hápunktinn á þessu ári
📅 22.10.2026 👁️ 2
Olíuverð hækkar – nálgast hápunktinn á þessu ári
Enn bólar ekkert á friði milli Bandaríkjanna og Írans. Heimsmarkaðsverð hráolíu er komið í 112,55 dollara á tunnu, sem er nálægt hápunktinum á þessu á...
Moment man rescued from sinking car by Australian TV reporter
📅 22.10.2026 👁️ 2
Moment man rescued from sinking car by Australian TV reporter
Journalist Will Murray describes how he and a bystander saved an SUV driver from his vehicle.
Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð - Vísir
Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að eldflaugarnar hafi lent í nokkrum hverfum Kænugarðs og valdið þar skaða á íbúðarhúsnæði, orkuinnviðum og...
Guðmundur Ingi greindist nýlega með krabbamein – „Ég var heppinn“
📅 22.10.2026 👁️ 3
Guðmundur Ingi greindist nýlega með krabbamein – „Ég var heppinn“
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra og nú þingmaður utan flokka, greindi frá því í ræðustól Alþingis í gær að hann hefði nýlega greinst m...
Mætti í krabbameinsskimun en var send heim óskoðuð
📅 22.10.2026 👁️ 3
Mætti í krabbameinsskimun en var send heim óskoðuð
Konur á aldrinum 23-64 ára fá boð í leghálsskimun með reglubundnum hætti. Konur sem fara reglulega í skimun fyrir leghálskrabbameini eru í minni hættu...
Russell Brand accuser said alleged rape 'really hurt', court hears
📅 22.10.2026 👁️ 2
Russell Brand accuser said alleged rape 'really hurt', court hears
The friend of a woman claiming to have been raped by Russell Brand says she said he was "quite aggressive".
Ung kona leitar að smakki af bláum ópal: „Kv ein sem fæddist ekki á 19 öld og fékk aldrei að upplifa bláan opal“
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ung kona leitar að smakki af bláum ópal: „Kv ein sem fæddist ekki á 19 öld og fékk aldrei að upplifa bláan opal“
Margir sem komnir eru á miðjan aldur og yfir muna eftir bláum Ópal. Í september árið 2005 tilkynnti Nói Siríus að framleiðslu hans yrði hætt. Skýringi...
Vantar sex milljónir til að halda Edduna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Vantar sex milljónir til að halda Edduna - Vísir
Þetta kemur fram í nýrri styrkumsókn Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunnar, ÍKSA, til fjárlaganefndar. Akademían segir hækkandi kostnað og minn...
Guð­mundur Ingi lét fjar­lægja blett af fætinum - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Guð­mundur Ingi lét fjar­lægja blett af fætinum - Vísir
Guðmundur greindi frá málinu í ræðustól Alþingis í gær. Ræðuna hélt hann í tilefni af bleika deginum sem fór fram í gær. Hann segir mikilvægt að samfé...
Flothringur af sjókví slitnaði frá og fór aftur að reka um Patreksfjörð
📅 22.10.2026 👁️ 3
Flothringur af sjókví slitnaði frá og fór aftur að reka um Patreksfjörð
Eins og greint hefur verið frá í fréttum RÚV strandaði flothringur af sjókví í Patreksfirði um miðjan september. Illa gekk að sækja hringinn sem barði...
After the Show: Low-key evening ideas for Tenerife
📅 22.10.2026 👁️ 3
After the Show: Low-key evening ideas for Tenerife
A big show, concert or comedy night can leave you feeling pleasantly full of noise, colour and conversation, but not quite ready to call it a night. T...
Harka lögreglu í garð mótmælenda kom á óvart
📅 22.10.2026 👁️ 3
Harka lögreglu í garð mótmælenda kom á óvart
Íslenskur kona sem hefur búið í Frakklandi í nær 20 ár segir ekki hafa komið á óvart þegar mótmælin, sem hafa verið í landinu síðustu vikur, hófust. H...
Retired Woking decorator's Pokémon cards sell for £1.5m
📅 22.10.2026 👁️ 2
Retired Woking decorator's Pokémon cards sell for £1.5m
He says he found treasure in his attic where the collection had been stored for 15 years.
Kveður Víet­nam og heldur á­fram til Kína - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Kveður Víet­nam og heldur á­fram til Kína - Vísir
„Góð tíðindi fyrir íslenskt atvinnulíf frá Víetnam,“ segir Þorgerður Katrín sem hélt utan um síðustu helgi ásamt meðal annars Ingileif Friðriksdóttur ...
Two named storms in two days as Austen and Boelo target UK
📅 22.10.2026 👁️ 3
Two named storms in two days as Austen and Boelo target UK
The Met Office have named a new storm, Boelo, which is set to bring another round of stormy weather to the UK over the weekend.
Seðla­bankinn lagði Þor­stein Má - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Seðla­bankinn lagði Þor­stein Má - Vísir
Dómur þess efnis var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun og Morgunblaðið greinir frá niðurstöðunni. Málið varðaði upplýsingar sem var að fin...
Segir suma fjölmiðla frekar vilja hafa vit fyrir fólki en að upplýsa það
📅 22.10.2026 👁️ 4
Segir suma fjölmiðla frekar vilja hafa vit fyrir fólki en að upplýsa það
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýnir harðlega fréttaflutning RÚV og fleiri fjölmiðla af óeirðunum í Frakklandi. Hann sakar s...
Inga Sæland sendir skýr skilaboð: „Það mun ekki frestast og nei, ég mun alls ekki hætta við þetta“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Inga Sæland sendir skýr skilaboð: „Það mun ekki frestast og nei, ég mun alls ekki hætta við þetta“
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, lætur neikvæðar umsagnir skólasamfélagsins um innleiðingu nýs einkunnakvarða í grunnskólum ekkert á sig fá....
Kári segir óttastjórnun í gangi á vinnustaðnum: „Fólk er að leita sér að annarri vinnu“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Kári segir óttastjórnun í gangi á vinnustaðnum: „Fólk er að leita sér að annarri vinnu“
„Uppsagnarhrinunni er ekki lokið,“ segir Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í morgun þar sem hann ræddi um uppsagnir s...
Seðlabankinn sýknaður af bótakröfu Þorsteins Más
📅 22.10.2026 👁️ 4
Seðlabankinn sýknaður af bótakröfu Þorsteins Más
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi Seðlabankanum í vil í miskabótamáli sem Þorsteinn Már Baldvinsson höfðaði gegn bankanum.Dómurinn var kveðinn upp í morgu...
Married at First Sight Australia: Police investigate show after 'inappropriate' allegations
📅 22.10.2026 👁️ 3
Married at First Sight Australia: Police investigate show after 'inappropriate' allegations
New South Wales Police say inquiries took place "following a report of inappropriate content being shared".
Uppgötvuðu augnalausan snigil
📅 22.10.2026 👁️ 4
Uppgötvuðu augnalausan snigil
Vísindamenn hafa uppgötvað áður óþekkta tegund ferskvatnssnigils í helli í Kína.Snigillinn, sem hefur fengið fræðiheitið Erhaia dijiang, hefur aðlagas...
Fólk upp­lifi óttastjórnun hjá Reykja­víkur­borg - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Fólk upp­lifi óttastjórnun hjá Reykja­víkur­borg - Vísir
Kári Sigurðsson, formaður Sameykis, var í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Þangað var hann mættur til að ræða hagræðingu í Reykjavík, sem bróðir hans Róbe...
BioWare: Mass Effect and Dragon Age video game studio to close
📅 22.10.2026 👁️ 4
BioWare: Mass Effect and Dragon Age video game studio to close
The influential studio that made Mass Effect and Dragon Age announces it is closing its doors.
Líklegast að það komi ekkert áþreifanlegt úr þessu
📅 22.10.2026 👁️ 4
Líklegast að það komi ekkert áþreifanlegt úr þessu
Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir að setja verði mikinn fyrirvara við yfirlýsingar Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að stríðslok í Úk...
Vilja meta áhrif gervigreindar á rekstur borgarinnar
📅 22.10.2026 👁️ 4
Vilja meta áhrif gervigreindar á rekstur borgarinnar
Borgarstjórn samþykkti á þriðjudag að vísa til borgarráðs tillögu Samfylkingarinnar um að vinna heildstæða úttekt á mögulegum áhrifum af notkun gervig...
Útför Matthew Perry lýst í nýrri heimildarmynd - Systir hans segir af hverju hún skellihló
📅 22.10.2026 👁️ 4
Útför Matthew Perry lýst í nýrri heimildarmynd - Systir hans segir af hverju hún skellihló
Systir Matthew Perry greinir frá nýjum, hjartnæmum upplýsingum um einkajarðarför hans.Mary Robertson, leikstjóri Netflix-heimildarmyndarinnar The One ...
Marta María fékk óvæntar ábendingar eftir skrif um sundferð þingmanna
📅 22.10.2026 👁️ 4
Marta María fékk óvæntar ábendingar eftir skrif um sundferð þingmanna
Marta María Winkel, umsjónarmaður Smartlands, segir að eftir skrif hennar um sundferð þingmannanna fimm í Selárlaug nýverið hafi tölvupóstum rignt yfi...
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Viðbrögð Elliða vekja athygli
📅 22.10.2026 👁️ 4
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Viðbrögð Elliða vekja athygli
Jasmina Vajzovic, fyrrverandi varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hefur birt skjáskot af fjölmörgum ummælum sem henni hafa borist á Facebook eftir að hún...
Aurora Abalone lýkur 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu
📅 22.10.2026 👁️ 4
Aurora Abalone lýkur 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu
Félagið Aurora Abalone (Sæbýli hf.) hefur lokið 1,5 milljarða króna hlutafjáraukningu til uppbyggingar 100 tonna árlegrar framleiðslu.Í fréttatilkynni...
„Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
„Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ - Vísir
Hin breska Dench er orðin 91 árs gömul og er ein dáðasta leikkona Bretlands, ef ekki heimsins. Hún hóf leikferilinn á sviði en færði sig svo yfir í kv...
Hvetur stór og smá fyrirtæki til að uppfæra vefi sína
📅 22.10.2026 👁️ 4
Hvetur stór og smá fyrirtæki til að uppfæra vefi sína
Hættuástand vegna öryggisgalla í PHP-forritunarmálinu er ekki yfirstaðið að mati sérfræðings hjá CERT-IS, netöryggissveit íslenskra stjórnvalda. Bjark...
Barclays cutting 5,000 jobs as it increases reliance on AI
📅 22.10.2026 👁️ 4
Barclays cutting 5,000 jobs as it increases reliance on AI
The bank says it is using more AI leading to a 5% reduction in its workforce.
Glaum­gosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Glaum­gosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns - Vísir
Prígósjín-veldið hefur minnkað nokkuð, þar sem stór hluti þess hefur endað í höndum varnarmálaráðuneytis Rússlands en Pavel er enn mjög umsvifamikill ...
Ókunnugur maður sagður hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ókunnugur maður sagður hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um einstakling í bifreið sem sagður var hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla. Lögreglumenn fór...
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Elliði stígur inn í umræðuna
📅 22.10.2026 👁️ 4
Jasmina birtir skjáskot af svívirðingum sem hún hefur fengið yfir sig - Elliði stígur inn í umræðuna
Jasmina Vajzovic, fyrrverandi varabæjarfulltrúi í Reykjanesbæ, hefur birt skjáskot af fjölmörgum ummælum sem henni hafa borist á Facebook eftir að hún...
Ástleysið er sárt
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ástleysið er sárt
Ástleysið er sárt Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og...