Rússland hagnast á meðan hætta á olíuskorti eykst

Rússland hagnast á meðan hætta á olíuskorti eykst

Rússland hagnast á meðan hætta á olíuskorti eykst

Alþjóðlegir olíumarkaðir eru nú í mikilli óvissu þar sem átök í Miðausturlöndum, breytingar á viðskiptaþvingunum og aðgerðir stórvelda hafa víðtæk áhrif á framboð og eftirspurn. Ný gögn benda til þess að tekjur sumra ríkja aukist hratt á meðan hætta á alvarlegum samdrætti og olíusjokki fer vaxandi.

Samkvæmt Alþjóðlegu orkumálastofnuninni (IEA) nær tvöfaldaði Rússland tekjur sínar af olíuútflutningi í mars. Tekjurnar námu um 19 milljörðum dala, eftir að útflutningur jókst í 7,1 milljón tunnur á dag. Aukningin kemur í kjölfar þess að Bandaríkin slökuðu tímabundið á hluta viðskiptaþvingana vegna stríðsins í Úkraínu, meðal annars með því að heimila sölu á olíu sem þegar var á leið til kaupenda.

Hafnarbann á írönsk hafnarsvæði

Á sama tíma hefur ákvörðun stjórnvalda í Washington um að setja hafnbann á írönsk hafnarsvæði við Hormuz-sund vakið miklar áhyggjur. Sundið er ein mikilvægasta siglingaleið heims og um fimmtungur allrar olíu fer þar um. Aðgerðin er talin geta raskað framboði verulega, sérstaklega til Asíu, þar sem Íran hefur áfram verið stór birgir þrátt fyrir átökin.

Íran hefur hingað til haldið uppi stöðugu flæði hráolíu, meðal annars með svokölluðum „skuggaflota“ – neti eldri skipa sem starfa í mikilli leynd til að komast hjá refsiaðgerðum. Sérfræðingar segja þetta kerfi hafa reynst ótrúlega þrautseigt, jafnvel í miðju stríði, og að erfitt verði að stöðva það án frekari stigmögnunar átaka.

Hafnbannið hafði áhrif á markaði

Hafnbannið hefur þegar haft áhrif á markaði. Olíuverð hækkaði um átta prósent og fór yfir 100 dali á tunnu skömmu eftir að það var tilkynnt. Kína, stærsti kaupandi íranskrar olíu, hefur gagnrýnt aðgerðirnar harðlega og kallað þær hættulegar.

Þrátt fyrir að framboð sé undir þrýstingi bendir IEA á að eftirspurn eftir olíu gæti nú dregist saman í fyrsta sinn frá því COVID-faraldurinn hófst. Hækkandi verð og truflanir á flutningum neyða ríki og atvinnugreinar til að draga úr notkun, og gert er ráð fyrir að eftirspurn minnki verulega á næstu mánuðum.

Stofnunin spáir því að eftirspurn hafi þegar dregist saman um hundruð þúsunda tunna á dag í mars og muni minnka enn frekar í apríl. Í sviðsmynd þar sem Hormuz-sundið helst lokað gæti samdrátturinn orðið allt að fimm milljónir tunna á dag það sem eftir er ársins.

Olíuverð hefur nær tvöfaldast 

Framboð hefur einnig orðið fyrir miklu höggi. Í mars hurfu yfir 360 milljón tunnur af markaðnum vegna átaka og skemmda á innviðum og búist er við enn meiri skerðingu í apríl. Heildarframboð féll niður í um 97 milljón tunnur á dag, sem er verulegur samdráttur á skömmum tíma.

Olíuverð hefur nær tvöfaldast frá því stríðið hófst og áhrifin eru farin að skila sér í hærra verði á eldsneyti og öðrum afurðum. Ríki hafa þegar gripið til ráðstafana, meðal annars með því að ganga á birgðir sínar, en birgðir heimsins minnkuðu um tugmilljónir tunna í mars einum saman.

Þrátt fyrir alvarlega stöðu telja sumir greiningaraðilar að markaðir geri ráð fyrir að átökunum ljúki áður en langt um líður. Vonir standa til þess að viðræður leiði til vopnahlés og að siglingaleiðir opnist á ný, sem gæti dregið úr þrýstingi á markaði.

Brutust í gegnum hafnarbannið 

Í gær fóru minnst þrjú skip frá írönskum höfnum yfir Hormuz-sundið þrátt fyrir hafnbann Bandaríkjanna, samkvæmt gögnum um skipaumferð sem birtust fyrr í dag. 

Eitt skipið var skráð í Líberíu og fór yfir sundið eftir að hafa losað um 74 þúsund tonn af maís í íranskri höfn. Annað var olíuflutningaskrip sem skráð er á Kómoreyjum og var hlaðið metanóli.  

Þá fór kínverskt olíuflutningaskip, Rich Starry, einnig yfir sundið að næturlagi, á leið með metanól til Óman. Er siglingin túlkuð sem prófraun á hafnarbann Bandaríkjanna. Talsmaður kínverska utanríkisráðuneytisins, Guo Jiakun, hefur sagt að hafnarbannið sé „hættulegt og ábyrgðarlaust“. Skipið er á lista Bandaríkjanna yfir skip sem sæta refsiaðgerðum vegna tengsla við Íran. 

Áhrif á íslenskan markað

Áfram ríkir þó mikil óvissa. Ef átökin dragast á langinn gæti heimsbúskapurinn staðið frammi fyrir einni mestu röskun á orkumörkuðum í sögunni, með tilheyrandi áhrifum á verðbólgu, hagvöxt og lífskjör um allan heim.

Íslendingar kaupa olíu frá Noregi og enginn skortur er á olíu þaðan. Verðið ræðst hins vegar af heimsmarkaðsverði. Íslenskir neytendur hafa fundið fyrir því að bensínverð hefur hækkað frá því í byrjun mars um 30 krónur á líterinn að meðaltali. Þá hefur verð á þotueldsneyti nærri tvöfaldast, sem endurspeglast í hærra verði á flugmiðum. Fréttastofa RÚV greindi einnig frá því fyrir helgi að birgjar vara við skorti á smurolíu. 

#olíuskorti #rússland #hagnast #meðan #hætta


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/26489/ovissa-a-oliumorkudum-russland-hagnast-a-medan-haetta-a-oliuskorti/

📰 Aðrar fréttir

Eina íslenska kollagenið framleitt á Blönduósi
📅 26.04.2026 08:00:00 👁️ 0

Eina íslenska kollagenið framleitt á Blönduósi

#kollagenið#framleitt#blönduósi#íslenska#eina
Dregið verulega úr starfsemi Iðunnar mathallar
📅 26.04.2026 07:53:40 👁️ 0

Dregið verulega úr starfsemi Iðunnar mathallar

#starfsemi#mathallar#verulega#iðunnar#dregið
Teenager in critical condition after motorbike crash in Gran Canaria
📅 26.04.2026 07:49:00 👁️ 0

Teenager in critical condition after motorbike crash in Gran Canaria

#condition#motorbike#teenager#critical#canaria
Enn má búast við slyddu eða snjó­komu - Vísir
📅 26.04.2026 07:39:24 👁️ 0

Enn má búast við slyddu eða snjó­komu - Vísir

#snjókomu#slyddu#búast#vísir
Tenerife’s new Sea Sports Centre is delayed by a year
📅 26.04.2026 07:39:00 👁️ 0

Tenerife’s new Sea Sports Centre is delayed by a year

#tenerife#delayed#sports#centre#year
Improving Secure Document Sharing Beyond Email Attachments
📅 26.04.2026 07:30:00 👁️ 0

Improving Secure Document Sharing Beyond Email Attachments

#attachments#improving#document#sharing#secure
Ölvun, vopna­burður og áfengishnupl - Vísir
📅 26.04.2026 07:25:43 👁️ 0

Ölvun, vopna­burður og áfengishnupl - Vísir

#áfengishnupl#vopnaburður#ölvun#vísir
40 ár frá Chernobyl-slysinu
📅 26.04.2026 07:22:06 👁️ 0

40 ár frá Chernobyl-slysinu

#chernobyl#slysinu
Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum - Vísir
📅 26.04.2026 07:03:00 👁️ 0

Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum - Vísir

#nikótínpúðum#milljónir#seldu#vísir#dósa
SUNDAY WEATHER: Cloud, occasional showers, and light winds in the Canary Islands
📅 26.04.2026 06:29:00 👁️ 0

SUNDAY WEATHER: Cloud, occasional showers, and light winds in the Canary Islands

#occasional#weather#showers#islands#sunday
In pictures: Chaos as gunfire heard in Washington ballroom
📅 26.04.2026 06:24:33 👁️ 0

In pictures: Chaos as gunfire heard in Washington ballroom

#washington#pictures#ballroom#gunfire#chaos
London Marathon sports quiz: How much money was raised? How many runners compete?
📅 26.04.2026 05:15:26 👁️ 0

London Marathon sports quiz: How much money was raised? How many runners compete?

#marathon#runners#compete#london#sports
Police: Correspondents' dinner suspect charged checkpoint, had multiple weapons
📅 26.04.2026 04:27:08 👁️ 0

Police: Correspondents' dinner suspect charged checkpoint, had multiple weapons

#correspondents#checkpoint#multiple#suspect#charged
Video shows correspondents' dinner suspect charge checkpoint
📅 26.04.2026 04:27:08 👁️ 0

Video shows correspondents' dinner suspect charge checkpoint

#correspondents#checkpoint#suspect#dinner#charge
Inside the room as shots rang out at correspondents' dinner
📅 26.04.2026 04:22:59 👁️ 0

Inside the room as shots rang out at correspondents' dinner

#correspondents#inside#dinner#shots#room
What we know about the gunshots at the White House Correspondents' Dinner
📅 26.04.2026 04:22:29 👁️ 0

What we know about the gunshots at the White House Correspondents' Dinner

#correspondents#gunshots#dinner#about#white
'You just didn't know': Gary O'Donoghue describes confusion and fears at correspondents' dinner
📅 26.04.2026 04:08:27 👁️ 0

'You just didn't know': Gary O'Donoghue describes confusion and fears at correspondents' dinner

#correspondents#describes#confusion#donoghue#dinner
14 létust þegar sprengja sprakk við hraðbraut
📅 26.04.2026 03:12:42 👁️ 0

14 létust þegar sprengja sprakk við hraðbraut

#hraðbraut#sprengja#létust#sprakk#þegar
Dunmurry: Homes evacuated after suspected car bomb explodes near police station
📅 26.04.2026 03:03:41 👁️ 0

Dunmurry: Homes evacuated after suspected car bomb explodes near police station

#evacuated#suspected#dunmurry#explodes#station
Starmer insists 'majority' of Labour MPs back his leadership
📅 26.04.2026 02:43:41 👁️ 0

Starmer insists 'majority' of Labour MPs back his leadership

#leadership#majority#starmer#insists#labour
Ógn á galakvöldverði og for­setinn fluttur á brott - Vísir
📅 26.04.2026 01:46:01 👁️ 0

Ógn á galakvöldverði og for­setinn fluttur á brott - Vísir

#galakvöldverði#forsetinn#fluttur#brott#vísir
Árásarmaður reyndi að gera árás á galakvöldverði – Bandaríkjaforseti og ráðherrar fluttir burt í skyndi
📅 26.04.2026 01:38:15 👁️ 0

Árásarmaður reyndi að gera árás á galakvöldverði – Bandaríkjaforseti og ráðherrar fluttir burt í skyndi

#bandaríkjaforseti#galakvöldverði#árásarmaður#ráðherrar#fluttir
Trump rushed from White House correspondents' dinner after suspected gunshots heard
📅 26.04.2026 01:13:23 👁️ 0

Trump rushed from White House correspondents' dinner after suspected gunshots heard

#correspondents#suspected#gunshots#rushed#dinner
Trump fluttur burt í skyndi þegar skothvellir heyrðust
📅 26.04.2026 00:57:40 👁️ 0

Trump fluttur burt í skyndi þegar skothvellir heyrðust

#skothvellir#heyrðust#fluttur#skyndi#trump
Útflutningur á sólarorkubúnaði tvöfaldaðist í mars
📅 26.04.2026 00:40:05 👁️ 0

Útflutningur á sólarorkubúnaði tvöfaldaðist í mars

#sólarorkubúnaði#útflutningur#tvöfaldaðist#mars
Why the voice note craze is yet to truly explode in Britain
📅 26.04.2026 00:03:47 👁️ 0

Why the voice note craze is yet to truly explode in Britain

#explode#britain#voice#craze#truly
We thought Gen Z weren't drinking alcohol. But do canned cocktails suggest otherwise?
📅 26.04.2026 00:02:24 👁️ 0

We thought Gen Z weren't drinking alcohol. But do canned cocktails suggest otherwise?

#cocktails#otherwise#drinking#thought#alcohol
UK steps up plans for potential shortages caused by Iran war
📅 25.04.2026 23:55:25 👁️ 0

UK steps up plans for potential shortages caused by Iran war

#potential#shortages#caused#steps#plans
Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin
📅 25.04.2026 23:21:43 👁️ 0

Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin

#fyrrverandi#húsfreyja#bakkakoti#látin
Bónda­konan á Bakka­koti er látin - Vísir
📅 25.04.2026 23:14:28 👁️ 0

Bónda­konan á Bakka­koti er látin - Vísir

#bóndakonan#bakkakoti#látin#vísir
The Epsom rape crime that never happened - but sparked a frenzy anyway
📅 25.04.2026 23:03:26 👁️ 0

The Epsom rape crime that never happened - but sparked a frenzy anyway

#happened#sparked#frenzy#anyway#epsom
I didn't tell my boyfriend my age when we started dating. I worried he might end things
📅 25.04.2026 23:03:01 👁️ 0

I didn't tell my boyfriend my age when we started dating. I worried he might end things

#boyfriend#started#worried#dating#things
Noah Kahan was crowned a superstar. It messed with his head
📅 25.04.2026 23:01:58 👁️ 0

Noah Kahan was crowned a superstar. It messed with his head

#superstar#crowned#messed#kahan#noah
Þóra í Bakkakoti er látin
📅 25.04.2026 22:59:00 👁️ 0

Þóra í Bakkakoti er látin

#bakkakoti#látin#þóra
Linnulausar árásir á Dnipro
📅 25.04.2026 22:41:32 👁️ 0

Linnulausar árásir á Dnipro

#linnulausar#árásir#dnipro
Trump cancels US envoys' trip to Pakistan for talks on Iran war
📅 25.04.2026 21:34:12 👁️ 0

Trump cancels US envoys' trip to Pakistan for talks on Iran war

#pakistan#cancels#envoys#trump#talks
Ísrael gerir loftárásir í suðurhluta Líbanons
📅 25.04.2026 21:24:21 👁️ 0

Ísrael gerir loftárásir í suðurhluta Líbanons

#loftárásir#suðurhluta#líbanons#ísrael#gerir
Giuffre family hold anniversary vigil ahead of King's US visit
📅 25.04.2026 21:23:21 👁️ 0

Giuffre family hold anniversary vigil ahead of King's US visit

#anniversary#giuffre#family#vigil#ahead
„Treystið nefinu og leyfið bragðlaukunum að leiða ykkur áfram“
📅 25.04.2026 20:56:43 👁️ 0

„Treystið nefinu og leyfið bragðlaukunum að leiða ykkur áfram“

#bragðlaukunum#treystið#nefinu#leyfið#leiða
Kjósendur í Palestínu vonast eftir breytingum
📅 25.04.2026 20:24:55 👁️ 0

Kjósendur í Palestínu vonast eftir breytingum

#breytingum#kjósendur#palestínu#vonast#eftir
Ör­væntir ekki yfir fregnum af falli meiri­hlutans - Vísir
📅 25.04.2026 20:13:52 👁️ 0

Ör­væntir ekki yfir fregnum af falli meiri­hlutans - Vísir

#meirihlutans#örvæntir#fregnum#falli#vísir
Framleiða hljóðdempandi veggpanela úr endurnýttu textílefni
📅 25.04.2026 19:59:41 👁️ 0

Framleiða hljóðdempandi veggpanela úr endurnýttu textílefni

#hljóðdempandi#veggpanela#endurnýttu#textílefni#framleiða
Hlaut al­var­lega höfuð­á­verka eftir á­rekstur á rafhlaupahjóli - Vísir
📅 25.04.2026 19:57:08 👁️ 0

Hlaut al­var­lega höfuð­á­verka eftir á­rekstur á rafhlaupahjóli - Vísir

#rafhlaupahjóli#höfuðáverka#alvarlega#árekstur#hlaut
Woman and child die after getting into difficulty in water at London park
📅 25.04.2026 19:49:02 👁️ 0

Woman and child die after getting into difficulty in water at London park

#difficulty#getting#london#woman#child
Orbán steps down from Hungarian parliament after landslide defeat
📅 25.04.2026 19:22:31 👁️ 0

Orbán steps down from Hungarian parliament after landslide defeat

#parliament#hungarian#landslide#defeat#orbán
Ofbeldi gagnvart ríkisstarfsmönnum algengt vandamál
📅 25.04.2026 19:20:04 👁️ 0

Ofbeldi gagnvart ríkisstarfsmönnum algengt vandamál

#ríkisstarfsmönnum#gagnvart#vandamál#ofbeldi#algengt
Orbán hættir á þingi - Vísir
📅 25.04.2026 19:03:52 👁️ 0

Orbán hættir á þingi - Vísir

#hættir#orbán#þingi#vísir
Protest by 500 campervans brings TF-1 to a crawl in Tenerife
📅 25.04.2026 18:54:00 👁️ 0

Protest by 500 campervans brings TF-1 to a crawl in Tenerife

#campervans#tenerife#protest#brings#crawl
Reyna áfram að liðka fyrir friðarviðræðum
📅 25.04.2026 18:50:38 👁️ 0

Reyna áfram að liðka fyrir friðarviðræðum

#friðarviðræðum#reyna#áfram#liðka#fyrir
Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konung­lega heim­sókn - Vísir
📅 25.04.2026 18:43:42 👁️ 0

Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konung­lega heim­sókn - Vísir

#falklandseyjastríðsins#konunglega#heimsókn#lífgar#gömlum